Árshátíð þarf oftast þrennt: einhvern sem stýrir kvöldinu, skemmtiatriði eftir matinn og tónlist á eftir. Hér eru allir listamenn á Outro sem taka að sér árshátíðir, með verði og svæði. Fyrirspurnin kostar ekkert og bindur þig ekki.
82 af 222 birta byrjunarverð á prófílnum sínum. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 40.000 kr. til 80.000 kr., en byrjunarverð er ekki tilboð: endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.
Skiptingin eftir landshlutum: Höfuðborgarsvæðið (180), Suðurland (21), Norðurland (11), Vesturland (5). Allir taka að sér viðburði um land allt, en sá sem býr nær kemur oftast betur út þegar ferðakostnaður er talinn með.
Árshátíðavertíðin er október fram í mars og föstudags- og laugardagskvöldin þar inni fara fyrst. Ef dagsetningin er komin á hreint borgar sig að senda fyrirspurn strax, líka þótt dagskráin sé ekki tilbúin.
Veislustjórinn heldur utan um kvöldið, kynnir atriðin og passar tímalínuna. Margir veislustjórar eru líka uppistandarar eða tónlistarfólk og geta tekið atriðið sjálfir, sem er oft ódýrari leið en tvær bókanir.
Í fyrirspurnum sem berast Outro vilja tæplega þrír af hverjum fjórum að atriðið byrji klukkan átta eða síðar, eftir matinn. Meðan fólk borðar virkar stutt innslag eða kviss á milli rétta, en tónlist og lengri atriði fá litla athygli frá hópi með disk fyrir framan sig. Skrifaðu hvenær borðhaldi á að vera lokið, ekki bara hvenær húsið opnar.
Fjöldi gesta og stærð salarins ræður bæði verðinu og því hvað passar. Á Outro skiptast árshátíðirnar nokkuð jafnt í þrennt: undir fimmtíu manns, fimmtíu til hundrað og yfir hundrað. Uppistand sem virkar fyrir fjörutíu manns í sal er ekki það sama og atriði fyrir þrjú hundruð, og listamaðurinn þarf töluna til að geta gert alvöru tilboð.
Hópur sem þekkist vel hlær að innanhússgríni, svo uppistand sem er sniðið að fyrirtækinu virkar. Hópur sem þekkist lítið, til dæmis eftir sameiningu eða með mökum, þarf fyrst eitthvað sem leiðir borðin saman, og þar virka kviss og bingó oft betur en grín. Segðu í fyrirspurninni hvernig hópurinn er, þá velur listamaðurinn atriði í stað þess að senda sama pakkann.
Sumir koma með allt sitt, aðrir gera ráð fyrir að það sé á staðnum. Salurinn á það líka til að eiga kerfi sem dugar. Þetta á heima í fyrirspurninni, því það er algengasta ástæðan fyrir því að tilboð stemma ekki innbyrðis.
Í stafrófsröð. Verðið er byrjunarverð þeirra sem birta það.
Afbóki listamaðurinn eða mæti hann ekki er endurgreitt að fullu, hversu stutt sem er í viðburðinn. Outro ber færslugjöldin af endurgreiðslunni.
Greiðslan fer í gegnum Outro og listamaðurinn fær hana eftir viðburðinn. Engin millifærsla fyrirfram á reikningsnúmer sem þú þekkir ekki.
Hver bókun fær eina kröfu fyrir fullri upphæð á kennitölu fyrirtækisins, og bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út.
Skilmálarnir í heild, þar á meðal hvað gerist ef þú afbókar sjálf/ur, eru á notendaskilmálum Outro.
Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.
Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.
Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum.
Samþykktu tilboðið og greiddu með korti eða kröfu. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn.
82 af þeim 222 listamönnum sem taka að sér árshátíðir á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 40.000 kr. til 80.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við, svo talan í tilboðinu getur verið önnur.
Eins fljótt og dagsetningin liggur fyrir. Október til mars er annasamasti tíminn og þekktustu nöfnin eru oft farin nokkrum mánuðum fyrir. Það er þó ekki útilokað að spyrja seint: á Outro kemur meira en helmingur fyrirspurna um viðburði með innan við mánuð til stefnu, og þær sem koma tveimur til sex vikum fyrir enda oftar í bókun en þær sem koma á síðustu tveimur vikunum. Á Outro sérðu strax hverjir eru lausir á dagsetningunni og getur sent fyrirspurn á fleiri en einn í einu.
Algengast er eitt atriði eftir mat og svo tónlist á eftir, með veislustjóra sem tengir kvöldið saman. Stærri árshátíðir bæta stundum við öðru stuttu atriði fyrir mat. Fleiri en tvö atriði á kvöldi verður oftast of mikið, því dagskráin étur tímann sem fólk vildi nota í að tala saman.
Eitt atriði er tuttugu til þrjátíu mínútur og dugar þegar einhver úr hópnum stýrir kvöldinu sjálfur. Veislustjóri er allt kvöldið: hann kynnir atriðin, tengir þau saman og passar að dagskráin haldist á tímanum. Því stærri sem hópurinn er, þeim mun meira munar um hann, og margir veislustjórar taka atriðið líka.
Það fer eftir listamanninum. Margir DJ-ar og hljómsveitir koma með eigið kerfi, aðrir gera ráð fyrir að það sé í salnum. Tilgreindu í fyrirspurninni hvað er til staðar, þá kemur það fram í tilboðinu í stað þess að koma í ljós á staðnum.
Já. Þegar fyrirtæki borgar sendum við kröfu í heimabankann og gjalddaginn er viku eftir viðburðinn, svo reikningurinn kemst í gegnum samþykktarferlið án þess að bókunin bíði. Bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út, ekki þegar hún er greidd.
Já, og það er venjan. Þú lýsir árshátíðinni einu sinni og sendir sömu fyrirspurn á þá sem koma til greina, færð tilboð til baka og berð þau saman áður en þú ákveður þig. Ekkert af þessu bindur þig fyrr en þú samþykkir tilboð.
Þá er hægt að lýsa árshátíðinni á /fyrirspurn og fá tillögur til baka í staðinn fyrir að velja sjálfur. Það er sama form og hér, bara án þess að listamaðurinn sé valinn fyrst.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.