Þarftu skemmtiatriði í árshátíðina, afmælið eða annan viðburð? Á Outro finnur þú grínista, töframenn, kynna og fleiri skemmtikrafta á Íslandi. Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum.

24 af 88 birta byrjunarverð á prófílnum sínum. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 30.000 kr. til 75.000 kr., en byrjunarverð er ekki tilboð: endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.
Skiptingin eftir landshlutum: Höfuðborgarsvæðið (74), Suðurland (5), Vesturland (3), Norðurland (2). Allir taka að sér viðburði um land allt, en sá sem býr nær kemur oftast betur út þegar ferðakostnaður er talinn með.
Afbóki listamaðurinn eða mæti hann ekki er endurgreitt að fullu, hversu stutt sem er í viðburðinn. Outro ber færslugjöldin af endurgreiðslunni.
Greiðslan fer í gegnum Outro og listamaðurinn fær hana eftir viðburðinn. Engin millifærsla fyrirfram á reikningsnúmer sem þú þekkir ekki.
Hver bókun fær eina kröfu fyrir fullri upphæð á kennitölu fyrirtækisins, og bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út.
Skilmálarnir í heild, þar á meðal hvað gerist ef þú afbókar sjálf/ur, eru á notendaskilmálum Outro.
Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.
Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.
Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum.
Samþykktu tilboðið og greiddu með korti eða kröfu. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn.
Skemmtikraftur sér um atriði á viðburði, til dæmis uppistand, töfrabrögð, veislustjórn eða eftirhermur. Þú bókar einn eða fleiri eftir stærð viðburðarins og stemningunni sem þú vilt.
Á Outro finnur þú fjölbreyttan hóp skemmtikrafta sem taka að sér árshátíðir, firmaveislur og aðra viðburði. Skoðaðu prófíla og sendu fyrirspurn beint.
Uppistand, töfrabrögð, eftirhermur, pöbbkviss og stutt tónlistaratriði eru algengustu skemmtiatriðin. Hver skemmtikraftur lýsir því sem hann býður upp á á prófílnum sínum.
Uppistand eftir matinn og veislustjóri sem heldur utan um kvöldið er algengasta samsetningin. Töfrabrögð og eftirhermur virka vel í minni sölum, þar sem allir sjá atriðið.
Verð er breytilegt eftir tegund skemmtunar, lengd og stærð viðburðar. Á Outro getur þú fengið tilboð frá mörgum skemmtikröftum og borið saman.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.