Oddur Sigmundsson

Oddur Sigmundsson

Tónlistarmaður · Hljómsveit
Höfuðborgarsvæðið

Um mig

Ég heiti Oddur og er gítarleikari. Ég hef sérhæft mig í að skapa létta stemmingu á mannamótum, með gítarinn einan að vopni. Tónlistin sem ég flyt er aðallega spænsk og suður-amerísk, í bland við þekkt dægurlög útsett fyrir einleiksgítar. Athugið, ég syng ekki. Atriðið mitt er ekki hugsað sem dæmigert skemmtiatriði, heldur sem bakgrunnstónlist í samkvæmum. Ég get þó fengið söngvara til liðs við mig ef óskað er eftir því. ⸻ My name is Oddur and I’m a guitarist specializing in creating a pleasant atmosphere at social gatherings. The music I play is mainly Spanish and South American, along with well-known pop songs arranged for solo guitar. Please note that I do not sing. My act is not intended as a typical entertainment performance, but rather as background music for social events. However, I can arrange for a singer to join me if requested.

Myndir og myndefni

Mynd úr myndasafni Oddur Sigmundsson
Mynd úr myndasafni Oddur Sigmundsson
Mynd úr myndasafni Oddur Sigmundsson
Mynd úr myndasafni Oddur Sigmundsson
Mynd úr myndasafni Oddur Sigmundsson

Tæknilegt

Tími

Uppsetning

30 mín

Flutningur

15-180 mín

Kemur með

HljóðkerfiHljóðnemi / Hausar

Þarf að vera til staðar

Rafmagn (tengistigi)Annað
  • Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
  • Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
  • Ekkert er greitt fyrr en bókun er staðfest

Umsagnir

Umsagnir utan Outro

8 umsagnir

Listamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.

Helga S. Konráðsdóttir, sóknarprestur og prófastur í HáteigskirkjuMessa · sep 2021

Oddur og gítarinn eiga mjög vel saman. Það sannreyndi ég í messu í dag.

Pétur Þorsteinsson, safnaðarprestur Óháða safnaðarinsMessur og fl. · okt 2020

Oddur hefur spilað í nokkrum athöfnum í Óháða söfnuðinum. Þar er hann yfirvegaður, rólegur og vel æfður. Mætir snemma, áður en athöfn hefst. Slíkt er afarhreint mikilvægt til þess að þeir, sem standa að athöfninni, séu afslappaðir og teymisvinnan gangi vel upp. Yfirvegun Odds er hans einkennismerki, svo það er auðvelt að treysta því, að hans samlegð gengur gersamlega upp.

Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns ÁrnesingaSýningaropnun · jún 2020

Oddur Sigmunds spilaði á opnun sýningarinnar Tíðaranda í safninu nú í sumar (2020) og var það einstaklega vel heppnað. Fallegir tónar ómuðu um safnið og fólk naut þess vel.

Páll E. Ingvarsson, taugalæknirNafnaveisla · apr 2020

Oddur Sigmunds gítarleikari spilaði í nafnaveislu hjá dóttursyni mínum, sem var haldin í stofunni heima hjá okkur. Þetta var ógleymanleg stund á sólríkum sumardegi, hátíðleg og ánægjuleg í senn, með sérstakri notalegri stemningu sem er erfitt að lýsa, en þarf að upplifa. Oddur á stóran þátt í því hve vel tókst til og hve góð stemningin varð, því hann spilaði fyrir gesti í rúman hálftíma fyrir athöfnina, sívinsæl lög úr ýmsum áttum, hver perlan á fætur annarri, allt spilað af mikilli færni, geislandi af innlifun, með dásamlegu ívafi af léttum jazz-spuna. Þar að auki lék hann í sjálfri athöfninni, m.a. meðleik með Sindra tengdasyni mínum, dúett fyrir þverflautu og gítar. Snilld, innlifun og musíkalitet Odds átti mjög stóran þátt í að gera þessa hátíðarstund ógleymanlega. Takk, Oddur!!

Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri hjá Bjarti og VeröldÚtgáfuhóf · sep 2019

Oddur hefur spilað á nokkrum útgáfuhófum á vegum Bjarts og Veraldar og hefur einstaklega gott lag á að skapa góða stemningu með sérlega vel fluttri tónlist.

Arnar Snæberg Jónsson, verkefnastjóri hjá ReykjavíkurborgStyrkveitingarathöfn · feb 2019

Oddur spilaði á styrkveitingarathöfn hjá okkur í Iðnó í febrúar 2019. Öll samskipti við hann voru fumlaus og gítarspilið á viðburðinum var frábærlega vel útfært; þægileg og ljúf bakgrunnstónlist sem rataði líka í forgrunn þegar á þurfti að halda. Algjör fagmaður og ég myndi hiklaust treysta Oddi til að sjá um gítarleik við hvaða tilefni sem er.

Sigurbjörn Aðalsteinsson, kvikmyndagerðarmaður og rithöfundurBrúðkaup · ágú 2016

Oddur lék á gítar í brúðkaupi okkar Kristínar konunnar minnar. Við hefðum ekki getað fengið betri mann í verkið. Hann skapaði einstaklega ljúfa og góða stemningu með gítartónum sínum og nærveru. Auk þess lærði hann lag sem ég hafði samið til konunnar minnar og flutti með óaðfinnanlegum hætti. Ég mæli hiklaust með Oddi við hverslags tilefni.

Bjarni Viðar Sigurðsson, KeramíkerSýningaropnun · okt 2013

Oddur Sigmunds gítarleikari spilaði hjá mér við sýningaropnun og einnig spilaði hann í afmælisveislu hjá mér og maka mínum. Einstaklega fallegir tónar sem Oddur nær fram í gítarleik sínum og ákaflega vel stilltur inn í mismunandi aðstæður, sem sýning og afmæli eru. Nærvera hans og gítarsins er mikil viðbót við hvern þann viðburð sem haldinn er. Mæli eindregið með.

Þér gæti líkað við