Hvað segja viðskiptavinir
Á Outro núna
Hver á að skemmta?
Hvernig virkar Outro
Frá fyrirspurn að staðfestri bókun.
Finndu listamann
Skoðaðu prófíla, myndbönd og umsagnir. Síaðu eftir flokki, staðsetningu og lausum dögum.
Sendu fyrirspurn
Lýstu viðburðinum og fáðu svar beint frá listamanninum. Fyrirspurnin kostar ekkert og bindur þig ekki.
Fáðu tilboð
Listamaðurinn sendir verð og skilmála. Þú sérð allt skriflegt áður en þú samþykkir nokkuð.
Njóttu viðburðarins
Þú borgar í gegnum Outro og við sjáum um greiðslu til listamannsins eftir viðburðinn.
Á döfinni
Uppákomur framundan
Tónleikar og viðburðir á Outro.

Fyrir listamenn
Spilaðu.
Við sjáum um
hitt.
Prófíll, dagatal, tilboð, greiðslur og bókhald á einum stað. Skráning tekur tvær mínútur.
Skrá mig sem listamann- Þú ræður verðinu
- Settu þitt lágmarksverð, merktu hvaða daga þú ert laus og taktu bara þau verkefni sem henta þér. Outro semur aldrei fyrir þína hönd.
- Greiðslan er tryggð
- Kaupandinn borgar í gegnum Outro og þú færð greitt 4-5 virkum dögum eftir viðburðinn. Þú þarft ekki að elta neinn.
- Pappírarnir fylgja með
- Tilboð, staðfesting, reikningur og ársyfirlit fyrir skattframtalið liggja í stýriborðinu. Þú sækir þau þegar þú þarft þau.
- 10% og ekkert annað
- Skráning er ókeypis, engin mánaðargjöld og engin uppsagnarákvæði. Þóknunin reiknast bara af bókunum sem fara í gegn.
Spurt og svarað
Það sem fólk spyr að
Mikilvægustu spurningarnar. Öll svörin eru á hjálparsíðunni.
Fyrir skipuleggjendur
Þú velur dagsetningu í leitinni og Outro sýnir listamenn sem hafa merkt sig lausa þann dag. Endanleg staðfesting fæst þegar listamaður samþykkir fyrirspurnina.
Þú sendir fyrirspurn, færð tilboð frá listamanni og samþykkir það með greiðslu í gegnum Outro. Ef meira en 10 dagar eru í viðburð geturðu valið 20% innborgun eða 100% greiðslu; nær viðburði gilda þrengri greiðslureglur samkvæmt skilmálum.
Það er ekkert aukagjald fyrir skipuleggjendur. Verðið sem þú samþykkir er lokaheildarverð. Outro tekur þóknun af listamanninum samkvæmt skilmálum.
Fyrir listamenn
Það er ókeypis að skrá sig á Outro. Outro tekur 10% þóknun af bókunum.
Skipuleggjandi greiðir í gegnum Outro og Outro millifærir á þig 4-5 virkum dögum eftir að viðburður hefur farið fram.
Já, þú stýrir sjálfur dagatalinu þínu og getur merkt daga sem lausa, upptekna eða bókaða.
Almennar spurningar
Outro er stafrænn bókunarvettvangur sem tengir saman listamenn og skipuleggjendur með einföldu, faglegu og öruggu ferli.
Bæði. Outro virkar í vafra á síma og tölvu og er líka í App Store fyrir iPhone. Android-appið er ekki komið.
Allir sem halda viðburði eða veita listræna þjónustu geta notað Outro: einstaklingar, fyrirtæki, hljómsveitir, DJ-ar og aðrir skemmtikraftar.
Fannstu ekki svarið? Sendu okkur línu






