Hvað kostar að bóka listamann á Íslandi?

Byrjunarverðin sem listamenn á Outro birta sjálfir á prófílnum sínum, eftir flokkum og uppfærð á klukkutíma fresti.

  • 248 listamenn
  • 94 með uppgefið verð
  • Uppfært 1. nóvember 2026

In English

Byrjunarverð eftir flokkum

  • DJ-ar

    Miðgildi50.000 kr.

    34 af 69 birta verð. Miðhelmingur 30.000 til 80.000 kr.

  • Tónlistarmenn

    Miðgildi50.000 kr.

    33 af 92 birta verð. Miðhelmingur 45.000 til 85.000 kr.

  • Skemmtikraftar

    Miðgildi49.500 kr.

    21 af 64 birtir verð. Miðhelmingur 30.000 til 75.000 kr.

  • Trúbadorar

    Miðgildi50.000 kr.

    18 af 50 birta verð. Miðhelmingur 50.000 til 60.000 kr.

  • Hljómsveitir

    Miðgildi100.000 kr.

    13 af 42 birta verð. Miðhelmingur 50.000 til 200.000 kr.

  • 9 af 54 birta verð, of fáir til að gefa bil.

  • 7 af 16 birta verð, of fáir til að gefa bil.

  • 4 af 9 birta verð, of fáir til að gefa bil.

Hvað hefur áhrif á verðið

  • Lengd. Tuttugu mínútna atriði og heilt kvöld eru ólík verk, svo taktu fram frá hvenær til hvenær.
  • Dagsetning. Laugardagur í desember er eftirsóttari en þriðjudagur í janúar.
  • Gestir og salur. Stærri salur kallar oft á stærra hljóðkerfi. Spurðu hvort það fylgir eða bætist við.
  • Ferðalag. Utan höfuðborgarsvæðisins bætist ferðakostnaður og stundum gisting við.

Hvernig tölurnar eru fengnar

Hver tala er byrjunarverð sem listamaðurinn valdi sjálfur að birta á prófílnum sínum. Þeir sem birta ekkert verð eru ekki taldir með, og flokkur fær ekkert bil fyrr en tíu eða fleiri í honum birta verð.

Miðgildið er verðið í miðjunni: helmingurinn birtir lægra verð og helmingurinn hærra. Bilið sýnir hvar miðhelmingurinn liggur, án ódýrasta og dýrasta fjórðungsins. Listamaður í tveimur flokkum er talinn í báðum.

Byrjunarverð er ekki tilboð. Tilboðið sem þú færð miðar við þinn viðburð.

Algengar spurningar

34 af 69 DJ-um á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 30.000 kr. til 80.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.

33 af 92 tónlistarmönnum á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 45.000 kr. til 85.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.

21 af 64 skemmtikröftum á Outro birtir byrjunarverð. Miðgildið er 49.500 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 30.000 kr. til 75.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.

18 af 50 trúbadorum á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 50.000 kr. til 60.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.

13 af 42 hljómsveitum á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 100.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 50.000 kr. til 200.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.

Nei. Byrjunarverð er talan sem listamaðurinn gefur upp á prófílnum sínum sem upphafspunkt. Tilboðið sem þú færð miðar við þinn viðburð: lengd, fjölda gesta, dagsetningu og ferðalag.

Úr byrjunarverðinu sem listamenn á Outro birta sjálfir á prófílnum sínum. Þeir sem birta ekkert verð eru ekki taldir með, og flokkur fær ekkert bil fyrr en tíu eða fleiri í honum birta verð. Tölurnar eru reiknaðar upp á nýtt á klukkutíma fresti.

Nei. Fyrirspurn á Outro er ókeypis og skuldbindur þig ekki til neins. Þú borgar ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð.

Viltu fá tilboð í þinn viðburð?

Sendu fyrirspurn og listamennirnir svara með tilboði. Það er ókeypis og án skuldbindingar.