Hlynur Þór
Um mig
Hlynur Þór er píanóleikari og söngvari með yfir 20 ára reynslu og tekur að sér tónlist við öll tilefni. Hann leggur áherslu á að skapa notalega og rétta stemningu, hvort sem um er að ræða rólega bakgrunnstónlist, jazz, létt popp eða líflega sing-along stemningu. Hlynur hefur spilað við fjölbreytt tilefni eins og brúðkaup, útfarir, afmæli, árshátíðir og partý, og aðlagar tónlistina að hverju tilefni og hópi. Hann er lærður jazzpíanóleikari frá Tónlistarskóla F.Í.H. Hann hefur starfað með mörgu af okkar ástsælasta tónlistarfólki, t.d. Páli Óskari, Stefáni Hilmarssyni, Ragga Bjarna, Þór Breiðfjörð, Kristjönu Stefánsdóttur, Hreimi Erni Heimissyni og Kristínu Stefánsdóttur. Hann hefur getið sér gott orð sem útsetjari og tónlistarstjóri og unnið fjölda stórra tónleika á borð við heiðurstónleika Burt Bacharach, Carpenters, Noruh Jones o.fl. Hlynur getur komið með eigið hljóðkerfi ef þess er óskað sem hentar vel fyrir viðburði fyrir allt að 100 manns.
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Tími
Uppsetning
15 mín
Flutningur
30 mín - 2,5 klst
Kemur með
Þarf að vera til staðar
Þér gæti líkað við
Ókeypis og óskuldbindandi