Vafrakökustefna Outro ehf.

Síðast uppfært: 11. ágúst 2026

Outro ehf., kt. 480126-2110, Súlunesi 20, 210 Garðabær, ber ábyrgð á þeim vafrakökum sem settar eru í gegnum outro.is. Þessi stefna er viðbót við persónuverndarstefnu Outro og útskýrir nákvæmlega hvaða kökur við notum og af hverju.

1. Hvað eru vafrakökur?

Vafrakaka er lítil textaskrá sem vefsíða vistar í vafranum þínum og les síðan aftur við næstu heimsókn. Kökur geta til dæmis munað að þú sért innskráð eða talið hversu margir heimsækja síðu.

Sömu reglur gilda um svipaða tækni sem geymir gögn í tækinu þínu án þess að vera eiginleg kaka, svo sem staðværa geymslu (e. localStorage) og setugeymslu (e. sessionStorage). Hún er talin upp í 6. kafla hér að neðan.

2. Samþykki þitt

Nauðsynlegar kökur (3. kafli) eru settar án samþykkis, enda virkar vefurinn ekki án þeirra. Greiningarkökur (4. kafli) og markaðskökur (5. kafli) byggja á samþykki, sem þú gefur eða neitar í vafrakökuborðanum sem birtist í fyrstu heimsókn.

Mikilvægt: svarið þitt er geymt í staðværri geymslu vafrans undir heitinu outro-cookie-consent, ekki í köku. Það þýðir að þú getur ekki breytt afstöðu þinni með því einu að eyða vafrakökum í stillingum vafrans. Notaðu hnappinn hér að neðan.

Núverandi stilling

Ekkert val er skráð. Á meðan eru hvorki greiningar- né markaðskökur virkjaðar.

Þegar þú hafnar hættir Outro strax að safna greiningargögnum og sendir afturköllun til Meta og Google. Kökur sem þegar hafa verið settar hverfa ekki sjálfkrafa. Þeim eyðir þú í stillingum vafrans, sjá kafla 7 hér að neðan.

3. Nauðsynlegar vafrakökur

Þessar kökur eru forsenda þess að hægt sé að skrá sig inn og nota vefinn. Þær eru allar frá Outro sjálfu (fyrsta aðila) og eru ekki notaðar til að fylgjast með þér á öðrum vefsvæðum.

Strjúktu töflunni til hliðar til að sjá líftíma og aðila.

HeitiTilgangurLíftímiAðili
sb-…-auth-token (getur skipst í .0 og .1)Heldur þér innskráðum. Geymir setutákn Supabase, sem er auðkenningarþjónustan á bak við Outro.400 dagar, endurnýjast við hverja innskráninguOutro (fyrsti aðili)
sb-…-code-verifierTímabundið öryggisgildi (PKCE) sem tryggir að innskráning með Google eða Apple ljúki í sama vafra og hóf hana.Eyðist um leið og innskráningu lýkurOutro (fyrsti aðili)
outro_active_modeMan hvort þú varst síðast í almenna hlutanum eða í veisluþjónustuhamnum, svo þú lendir á réttri forsíðu.1 árOutro (fyrsti aðili)
outro_capsMan hlutverk þitt og aðgangsheimildir svo rétt valmynd teiknist strax. Inniheldur engar viðkvæmar upplýsingar og er alltaf staðfest á móti gagnagrunninum.1 árOutro (fyrsti aðili)

4. Greiningarkökur

Greining hjálpar okkur að sjá hvaða hlutar vefsins nýtast og hvar fólk gefst upp. Þessar kökur eru aðeins settar eftir að þú hefur samþykkt. IP-tölur eru ekki vistaðar og gögnin eru hýst innan ESB.

Strjúktu töflunni til hliðar til að sjá líftíma og aðila.

HeitiTilgangurLíftímiAðili
ph_…_posthogPostHog notendagreining. Geymir nafnlaust auðkenni vafrans og grunnupplýsingar um heimsóknina svo hægt sé að telja hversu margir nota hvaða hluta vefsins.365 dagarPostHog (þriðji aðili, hýst í ESB)

Outro notar einnig Vercel Analytics og Vercel Speed Insights til að mæla hraða og umferð. Þau eru einnig háð samþykki þínu en setja engar kökur og búa ekki til auðkenni um þig.

5. Markaðs- og auglýsingakökur

Outro auglýsir á Facebook, Instagram og Google. Þessar kökur eru settar af Meta og Google og gera þeim kleift að mæla árangur auglýsinganna og sýna þér endurmarkaðssetningu. Þær eru aðeins settar eftir að þú hefur samþykkt.

Strjúktu töflunni til hliðar til að sjá líftíma og aðila.

HeitiTilgangurLíftímiAðili
_fbpMeta Pixel. Auðkennir vafrann svo Meta geti mælt árangur auglýsinga Outro á Facebook og Instagram.90 dagarMeta (þriðji aðili)
_fbcGeymir smellauðkennið (fbclid) þegar þú kemur inn á outro.is af auglýsingu á Facebook eða Instagram.90 dagarMeta (þriðji aðili)
_gcl_auGoogle Ads. Tengir heimsókn þína við auglýsingasmell svo hægt sé að mæla hvaða auglýsingar skila bókunum.90 dagarGoogle (þriðji aðili)

Mælingaforskriftir Meta og Google eru ekki sóttar fyrr en samþykki liggur fyrir. Google Consent Mode v2 neitar að auki öllum mælingum sjálfgefið strax í hausnum á síðunni, áður en nokkuð annað keyrir. Ef þú dregur samþykkið til baka fá Meta og Google send skilaboð um afturköllun, en kökur sem þegar voru settar hverfa ekki af sjálfu sér. Þeim eyðir þú samkvæmt 7. kafla, þar sem einnig er hægt að afþakka notkunina beint hjá Meta og Google.

6. Svipuð tækni (staðvær geymsla)

Eftirfarandi gögn eru geymd í vafranum þínum en eru ekki vafrakökur. Þau eru ekki send sjálfkrafa með hverri beiðni eins og kökur gera.

Strjúktu töflunni til hliðar til að sjá líftíma og aðila.

HeitiTilgangurLíftímiAðili
outro-cookie-consentGeymir svarið þitt við vafrakökuborðanum (samþykkt eða hafnað) svo hann birtist þér ekki aftur.Þar til þú hreinsar vefgögn síðunnarOutro (fyrsti aðili)
ph_…_posthog og __ph_opt_in_out_…PostHog geymir sömu gildi og kakan hér að ofan, auk þess hvort þú hafir leyft söfnun. Er aðeins skrifað eftir að þú samþykkir.Þar til þú hreinsar vefgögn síðunnarPostHog (þriðji aðili)
crisp-client/…Crisp netspjallið á hjálparsíðunum. Heldur utan um spjallþráðinn þinn svo hann glatist ekki milli heimsókna. Hleðst aðeins á /hjalp síðunum.Þar til þú hreinsar vefgögn síðunnarCrisp (þriðji aðili)
inquiryFormDraft og tengd drögGeymir hálfkláraða fyrirspurn í tækinu þínu svo textinn tapist ekki ef þú lokar glugganum. Er ekki sent neitt fyrr en þú sendir fyrirspurnina.Þar til fyrirspurnin er send eða þú hreinsar vefgögnOutro (fyrsti aðili)
directLinkToken og directLinkToken_persistentMan að þú komst inn um beinan hlekk frá tilteknum listamanni, svo fyrirspurnin þín rati á réttan aðila eftir innskráningu.24 klukkustundirOutro (fyrsti aðili)
outro_active_artistFyrir umboðsmenn sem stýra fleiri en einum listamanni. Man hvaða listamann þú varst síðast að vinna með.Þar til þú hreinsar vefgögn síðunnarOutro (fyrsti aðili)
outro_push_tokenAuðkenni tækisins fyrir push-tilkynningar í símaforritinu. Er eytt þegar þú skráir þig út.Þar til þú skráir þig útOutro (fyrsti aðili)

7. Hvernig þú stýrir vafrakökum

  • Í gegnum Outro: notaðu hnappinn í 2. kafla hér að ofan. Hann opnar vafrakökuborðann aftur svo þú getir samþykkt eða hafnað hvenær sem er.
  • Í vafranum:allir vafrar leyfa þér að skoða og eyða kökum og staðværri geymslu fyrir einstök vefsvæði. Leitaðu að „Hreinsa vefgögn“ eða „Clear site data“ í stillingum vafrans. Athugaðu að þá skráir þú þig um leið út af Outro.
  • Hjá Meta: þú stýrir auglýsingamælingum í auglýsingastillingum Facebook.
  • Hjá Google: þú stýrir auglýsingamælingum í auglýsingastillingum Google.
  • Að loka á allar kökur er alltaf í boði í stillingum vafrans, en þá getur þú ekki skráð þig inn á Outro.

8. Efni frá þriðju aðilum

Á prófílsíðum listamanna getur verið innfellt efni frá Spotify og YouTube. Þegar slíkt efni hleðst getur viðkomandi þjónusta sett sínar eigin kökur, sem lúta skilmálum hennar en ekki Outro. Kynningarmyndbandið á forsíðunni er sótt af youtube-nocookie.com, sem setur ekki mælingakökur fyrr en myndbandið er spilað.

Vinnsla persónuupplýsinga hjá þriðju aðilum, þar á meðal flutningur gagna út fyrir EES, er rakin í persónuverndarstefnunni.

9. Breytingar og fyrirspurnir

Outro getur uppfært þessa stefnu þegar kökum er bætt við eða þær teknar úr notkun. Dagsetning síðustu uppfærslu stendur efst á síðunni.

Fyrirspurnir um vafrakökur eða persónuvernd má senda á outro@outro.is. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

Outro ehf.

Súlunesi 20, 210 Garðabær

Netfang: outro@outro.is

Kt: 480126-2110

Sími: +354 852 1414