Skemmtun á jólaball fyrir fyrirtæki og félög

Jólaball starfsfólks og fjölskyldna er annað verkefni en jólahlaðborðið: börn í salnum, styttri dagskrá og atriði sem allir geta tekið þátt í. Hér eru allir listamenn á Outro sem hafa merkt jólaböll á prófílinn sinn, með verði og svæði. Fyrirspurnin kostar ekkert og bindur þig ekki.

  • 20 listamenn taka að sér jólaböll
  • 8 flokkar
  • 5 með uppgefið verð
  • 3 landshlutar

Hvað er í boði á jólaballi

Listamenn

Áður en þú sendir fyrirspurn

Segðu hvort börn eru í salnum

Jólaball er oft haldið fyrir starfsfólk og börnin þeirra, og það ræður valinu meira en nokkuð annað. Atriði sem er samið fyrir fullorðna á ekki heima fyrir framan lítil börn og öfugt. Skrifaðu í fyrirspurninni hvort börn koma, hvað þau eru gömul og hvort foreldrarnir eru í salnum, þá velur listamaðurinn atriði sem passar.

Stutt dagskrá frekar en heilt kvöld

Börn missa þráðinn ef dagskráin er löng. Jólaball er yfirleitt skipt í stutta kafla með söng, dansi og einu eða tveimur atriðum, og hlé á milli. Segðu hvenær ballið byrjar og hvenær því á að vera lokið, ekki bara hvenær húsið opnar.

Einn listamaður eða fleiri

Algengast er að tónlistarmaður eða hljómsveit stýri söngnum og dansinum í kringum jólatréð, og svo komi annað atriði ofan á, til dæmis töframaður eða kynnir. Sumir listamenn gera hvort tveggja og þá er ein bókun ódýrari leið en tvær. Spyrðu um það í fyrirspurninni.

Salurinn og hljóðkerfið

Jólaböll eru oft í sal sem félagið leigir eða í húsnæði fyrirtækisins, og þar er ekki alltaf hljóðkerfi sem dugar fyrir söng og hljóðfæri. Athugaðu það fyrst og settu svarið í fyrirspurnina, því listamaðurinn þarf að vita hvort hann kemur með kerfi eða ekki.

Hver borgar

Fyrirtæki og starfsmannafélög vilja oftast reikning en ekki kort. Segðu það strax í fyrirspurninni, þá er hægt að stofna bókunina rétt frá byrjun í stað þess að breyta greiðslumátanum eftir á.

Desember er þröngur

Jólaböll eru flest í desember og sömu helgarnar fara fyrst. Sé dagsetningin komin borgar sig að senda fyrirspurn strax, líka þótt dagskráin sé ekki ákveðin.

Allir sem taka að sér jólaböll (20)

Í stafrófsröð. Verðið er byrjunarverð þeirra sem birta það.

Af hverju að bóka gegnum Outro

Hættir listamaðurinn við, færðu allt til baka

Afbóki listamaðurinn eða mæti hann ekki er endurgreitt að fullu, hversu stutt sem er í viðburðinn. Outro ber færslugjöldin af endurgreiðslunni.

Þú greiðir Outro, ekki listamanninum

Greiðslan fer í gegnum Outro og listamaðurinn fær hana eftir viðburðinn. Engin millifærsla fyrirfram á reikningsnúmer sem þú þekkir ekki.

Fyrirtæki fá kröfu á gjalddaga eftir viðburðinn

Hver bókun fær eina kröfu fyrir fullri upphæð á kennitölu fyrirtækisins, og bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út.

Skilmálarnir í heild, þar á meðal hvað gerist ef þú afbókar sjálf/ur, eru á notendaskilmálum Outro.

Svona virkar það

1

Leitaðu

Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.

2

Sendu ókeypis fyrirspurn

Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.

3

Fáðu tilboð

Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum.

4

Bókaðu og greiddu örugglega

Samþykktu tilboðið og greiddu með korti eða kröfu. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn.

Algengar spurningar

Listinn hér að ofan er allir sem hafa merkt jólaball á prófílinn sinn: skemmtikraftar, veislustjórar, tónlistarfólk, hljómsveitir og stundum töframenn eða kviss. Fyrir kvöldskemmtun fullorðinna, jólagleði eða jólahlaðborð fyrirtækisins er listinn á /jolahladbord lengri og öðruvísi samsettur.

Jólaball er oftast fyrir starfsfólk og börnin þeirra, með stuttri dagskrá þar sem börnin taka þátt. Jólaskemmtun eða jólagleði fyrirtækis er oftast kvöldviðburður fyrir fullorðna með mat, atriðum og tónlist. Listamaðurinn sem hentar er ekki sá sami, svo taktu fram í fyrirspurninni hvort börn koma.

Um leið og dagsetningin er komin, helst í október eða nóvember fyrir desember. Jólaböll lenda á fáum helgum og þeir sem bíða fram í desember fá það sem er eftir. Á Outro sérðu strax hverjir eru lausir á deginum.

Nei, það er val. Tónlistarmaður einn og sér getur stýrt söng og dansi, og sumir skemmtikraftar og veislustjórar gera hvort tveggja. Lýstu ballinu í fyrirspurninni og sendu hana á einn eða tvo, þá sérðu hvað hver leggur til áður en þú ákveður.

Já. Þegar fyrirtæki borgar sendum við kröfu í heimabankann og gjalddaginn er viku eftir viðburðinn, svo reikningurinn kemst í gegnum samþykktarferlið án þess að bókunin bíði. Bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út, ekki þegar hún er greidd.

Talaðu við listamanninn í þræðinum um leið og þú veist það. Því fyrr sem afbókun kemur, þeim mun líklegra er að hann nái að selja daginn öðrum, og skilmálarnir um endurgreiðslu fara eftir því hve langt er í viðburðinn. Þeir eru á /hjalp/notendaskilmalar.

Fleiri tilefni, flokkar og svæði

Tilbúin(n) að bóka?

Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.

Skoða skemmtun á jólaball