Hljómsveitin SPAN
Hljómsveitin SPAN er ballsveit sem spilar tökulög úr ýmsum áttum, bæði gömul og ný, á árshátíðum, þorrablótum, í brúðkaupum og einkasamkvæmum af öllum stærðum. Á lagalistanum eru meðal annars Queen, ABBA, Bítlarnir, Bruno Mars, Kings of Leon, Chic og Maroon 5, og fullt af íslenskum lögum. Hljómsveitin vinnur líka að eigin lagasmíðum. Í SPAN eru Jón Gunnar Þórarinsson (söngur og gítar), Davíð Valdimarsson (gítar og bakraddir), Stefán Henrýsson (hljómborð og bakraddir), Marinó Önundarsson (bassi) og Stefán Örn Sveinsson (trommur). SPAN kemur með hljóðkerfi, ljós og hljómsveitarbíl og getur líka séð um undirleik í fordrykk, dinner og fjöldasöng. Hljómsveitin hefur spilað á árshátíðum hjá Landsneti, Mílu, Árvakri og Þjóðskrá Íslands, og á þorrablótum hjá Samskipum og Húsasmiðjunni.
Lög og mix
🎧 Spilað beint af SoundCloud
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Kemur með
Þér gæti líkað við
Ókeypis og óskuldbindandi


