Stórafmæli í sal og þrjátíu manna partý heima eru ólík verkefni, þótt tilefnið heiti það sama. Hér eru allir listamenn á Outro sem taka að sér afmæli, með verði og svæði. Fyrirspurnin kostar ekkert og bindur þig ekki.
66 af 184 birta byrjunarverð á prófílnum sínum. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 45.000 kr. til 80.000 kr., en byrjunarverð er ekki tilboð: endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.
Skiptingin eftir landshlutum: Höfuðborgarsvæðið (149), Suðurland (18), Norðurland (11), Vesturland (5). Allir taka að sér viðburði um land allt, en sá sem býr nær kemur oftast betur út þegar ferðakostnaður er talinn með.
Heima ræður plássið, rafmagnið og nágrannarnir hvað gengur. Trúbador með kassagítar passar þar sem heil hljómsveit gerir það ekki. Segðu hvort þetta er heima, í sal eða á veitingastað, það breytir bæði tilboðinu og því hverjir svara.
Fimmtugsafmæli og áttræðisafmæli kalla á ólíka tónlist, og barnaafmæli er alveg sér verkefni. Skrifaðu aldur afmælisbarnsins í fyrirspurnina, það er fljótlegasta leiðin til að fá tilboð sem passar í fyrstu tilraun.
Algengast er einn til tveir tímar, eða eitt stutt atriði ef það á bara að lyfta kvöldinu í smá stund. Verðið hangir á þessu, svo giskaðu frekar en að sleppa því. Það má alltaf breyta áður en tilboðið er samþykkt.
Þá þarf listamaðurinn að vita það, því hann getur ekki hringt í afmælisbarnið til að stilla saman. Segðu hver tekur á móti honum og hvenær hann á að vera mættur, og notaðu þitt eigið símanúmer en ekki afmælisbarnsins.
Í stafrófsröð. Verðið er byrjunarverð þeirra sem birta það.
Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.
Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.
Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum, yfirleitt innan sólarhrings.
Skrifaðu undir stafrænan samning og greiddu með korti. Greiðslan er geymd þar til eftir viðburðinn.
66 af þeim 184 listamönnum sem taka að sér afmæli á Outro birta byrjunarverð. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 45.000 kr. til 80.000 kr., en endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við, svo talan í tilboðinu getur verið önnur.
Fyrir stórafmæli í sal er mánuður til tveir góð regla, og lengra ef þetta er á laugardegi að sumri. Minni afmæli ganga oft upp með viku fyrirvara. Á Outro sérðu strax hverjir eru lausir á deginum, svo það er fljótlegt að vita hvort þú ert of seinn.
Trúbador eða söngvari með kassagítar er algengasta svarið, því hann þarf lítið pláss og ekkert kerfi. Töframaður sem gengur á milli borða virkar líka vel í þröngu rými. Heil hljómsveit eða DJ með hljóðkerfi þarf sal eða að minnsta kosti bílskúr.
Já, en þá er betra að leita undir barnaskemmtun frekar en hér: töframenn og skemmtikraftar sem vinna með börnum eru merktir sérstaklega og listinn verður mun styttri og betri. Tenglarnir neðst á síðunni fara þangað.
Segðu listamanninum frá því í þræðinum. Fjöldi gesta hefur oftast ekki áhrif á verðið hjá einum trúbador, en hann getur haft áhrif á hljóðkerfi og lengd. Breyting á staðfestri bókun er gerð í samráði og fer í gegnum Outro, svo hún er skjalfest.
Já, og það er algengara en fólk heldur. Tuttugu mínútna atriði um mitt kvöld kostar minna en heilt kvöld af tónlist og skilar oft meiru. Taktu fram í fyrirspurninni að þú viljir atriði en ekki undirspil, þá verðleggja allir það sama.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.
Skoða skemmtun í afmæli