Hljómsveitin PRIMA

Hljómsveitin PRIMA

Hljómsveit · Tónlistarmaður · Skemmtikraftur · Veislustjóri

Um okkur

Hljómsveitin PRIMA tekur að sér að flytja tónlist við hvers kyns mannamót, svo sem brúðkaup, árshátíðir, þorrablót, afmæli, bæjarhátíðir og í rauninni flest það sem snýr að tónlist þegar fólk gerir sér glaðan dag. Gott ball er ekki hrist fram úr erminni. Það krefst undirbúnings og ef hljómsveitin býr ekki yfir fjölbreyttu lagavali, er vandi á ferð. Fjölbreytt efnisskrá er helsti hornsteinn hljómsveitarinnar og velgengni hennar — því með góðri reynslu nær PRIMA að höfða til mismunandi aldurshópa og leika þá tónlist sem passar stemmningunni hverju sinni. Þeir Gunnar Kr. og Guðmundur hafa leikið fyrir dansi og söng, hér heima og heiman, í fjölda ára og geta einnig séð um veislustjórn, skipulagningu, skemmtiatriði og útvegað húsnæði, svo dæmi séu tekin.

Myndir og myndefni

Hentar fyrir

AfmæliFyrirtækjaskemmtunAnnaðBrúðkaupÚtskrift

Tæknilegt

Tími

Uppsetning

30 mín

Kemur með

HljóðkerfiHljóðnemi / HausarAnnað

Þarf að vera til staðar

Rafmagn (tengistigi)Svið / Pall

Umsagnir

Umsagnir utan Outro

6 umsagnir

Listamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.

OddfellowÁrshátíð

“Þökkum ykkur í PRIMA fyrir frábært framlag á skemmtun okkar. Það var mikið fjör — mikið gaman. Sannkallaður dans á rósum!”

Auður og Ingólfur (brúðhjón)Brúðkaupsveisla

“Takk, takk, takk PRIMA! Þið gerðuð brúðkaupsveisluna umtalaða vegna skemmtilegrar tónlistar!”

KiwanisÁrshátíð

“Það er langt síðan við höfum skemmt okkur eins vel á árshátíð og þegar Hljómsveitin PRIMA var hjá okkur. Öll skemmtilegu lögin héldu okkur á dansgólfinu!”

Þorrablót á EyrarbakkaÞorrablót

“Takk kærlega fyrir okkur! Þið stóðuð ykkur frábærlega!”

Færeyingafélagið á ÍslandiRæstikjötsveisla

“Takk kærlega fyrir okkur! Þetta var mjög skemmtilegt ball og þið í PRIMA góðir eins og venjulega!”

Dýrfirðingafélagið í ReykjavíkÁrshátíð

“Hljómsveitin PRIMA lék á árshátíð okkar og stemmningin var einstök. Þeir léku lögin sem allir þekkja og við dönsuðum sólana af skónum okkar. Það voru allir mjög ánægðir!”

Þér gæti líkað við

Verð fer eftir verkefninu

Ókeypis og óskuldbindandi