Happy Studio

Happy Studio

Skemmtikraftur · Hópefli · Bingó · PubQuiz
Höfuðborgarsvæðið

Um mig

Happy Studio er innstungan i partýið, dansduo sem kemur öllum á dansgólfið. Dansskemmtun í hæsta gæðaflokki. Einnig hægt að bóka þau í Singalong Pubquiz og tónlistarbingó sem hefur svo sannarlega slegið í gegn.Tilvalið í gæsanir, steggjanir, brúðarvalskennslu, afmæli, árshátíðir, brúðkaup eða bara sem hópefli. "Anna og Frikki eru einstök á allan hátt! Að vera með þeim í dansi er eins og að fá gleðisprautu í rassinn! Útgeislun þeirra og pepp er á við heilt orkuver og þau gætu hreinlega vakið steindauðan mann upp og látið hann dansa trylltan dans! Sannkallaðir gleðigjafar!” Edda Björgvins

Myndir og myndefni

Hentar fyrir

FyrirtækjaskemmtunAfmæliAnnaðBrúðkaupÁrshátíð

Tæknilegt

Tími

Uppsetning

15 mín

Flutningur

30 mín - 1 klst

Þarf að vera til staðar

Rafmagn (tengistigi)AnnaðHljóðkerfiHljóðnemi

Umsagnir

Umsagnir utan Outro

8 umsagnir

Listamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.

GarðheimarÁrshátíð

“Stuðboltar og hrikalega skemmtileg”

Heiðdís RósBrúðkaup

“Ég mæli með Friðrik Agna og Önnu hjá Happy Studio. Þau héldu stuðinu uppi alla veisluna. Þau eru algjörlega mögnuð”

Elísabet Indra (MEKÓ)Barnamenningarhátíð

“"Gleðigjafar, stuðpinnar og fagfólk fram í fingurgóma. Hugmyndarík, skapandi og skemmtileg og hafa fengið Kópavog til að iða af lífi við ófá tilefni þar sem allar kynslóðir sameinast í stórkostlegu danspartýi."”

Bryndís ViðarsBrúðkaup

“Þetta var svo skemmtilegt í alla staði. Gestirnir höfðu sérstaklega orð á því hvað þetta var skemmtilegt og flott hjá ykkur”

Eygló Lilja HaraldsdóttirFélagsmiðstöð

“Ég er búin að fá Önnu til að koma og skemmta á nokkrum viðburðum hjá mér og það er alltaf jafn skemmtilegt! Allir koma úr tíma hjá henni með risa stórt bros framan á sér, sáttir með að hafa þurft að fara aðeins út fyrir kassan og hafa gaman. Hún er ótrúlega góð í að fá alla með sér og stemningin verður yndisleg. Ég mæli svo mikið með að bóka hana og byrja gamanið, þú munt ekki sjá eftir því! Svo er hún svo hæfileikarík, bara hvað má bjóða þér? Hún getur reddað því, sko minnsta mál!”

HelenaBrúðkaup

“Ég og maðurinn minn fórum í danskennslu hjá Önnu hjá Happy Studio fyrir brúðkaupið okkar og upplifunin var frábær í alla staði! Anna lét okkur líða svo vel og gerði kennsluna einstaklega skemmtilega og afslappaða. Við komum til hennar sem algjörir byrjendur en fórum út með fullt af sjálfstrausti og hlökkum nú til að dansa saman á stóra deginum. Við getum ekki mælt nógu mikið með Önnu og eigum klárlega eftir að fara í fleiri tíma hjá henni.”

Bergþór PálssonAllir geta dansað

“Friðrik er geislandi skemmtikraftur, flinkur dansari, ber einstaklega góða persónu og kemur öllum í gott skap!”

Edda BjörgvinsPop up viðburður

“"Anna og Frikki eru einstök á allan hátt! Að vera með þeim í dansi er eins og að fá gleðisprautu í rassinn! Útgeislun þeirra og pepp er á við heilt orkuver og þau gætu hreinlega vakið steindauðan mann upp og látið hann dansa trylltan dans! Sannkallaðir gleðigjafar!””

Þér gæti líkað við

Verð fer eftir verkefninu

Ókeypis og óskuldbindandi