Rebekka Magnúsdóttir
Rebekka er leikkona og spunaleikari hjá Improv Ísland. Hún hefur mjög góða reynslu sem veislustjóri og notar sterkan húmor og jákvæðan persónuleika til þess að passa upp á að kvöldið flæði og að allir njóti sín, bæði gestir og veisluhaldarar. Rebekka nær mjög vel til fólks og kann að koma fólki í stuðið en líka halda sig til hlés ef salurinn eða kvöldið kallar á það. Hún sér til þess að dagskráin renni áfram snuðrulaust, tekur jákvæð á móti hverju því óvænta sem kann að gerast, og býður upp á skemmtileg atriði þegar hentar. T.d. uppistand, vinnustaðagrín, söng-grínlög, ýmsa leiki og rapp frá MCRappbekku. Ef þú vilt koma fólki í stuð, hafa góða stemmningu og fá peppkonu aldarinnar, heyrðu þá í Rebekku fyrir veisluna þína. Rebekka tekur einnig að sér hópefli fyrir vinnustaði.
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Þarf að vera til staðar
Þér gæti líkað við
Ókeypis og óskuldbindandi




