Tingó tónlistarbingó

Tingó tónlistarbingó

Bingó · Skemmtikraftur
5.0(1)
Höfuðborgarsvæðið

Um sýninguna

Tingó – Tónlistarbingó með takti, tónum og geggjuðu fjöri þar sem allir geta sungið með. Tingó er eins og venjulegt bingó, nema miklu skemmtilegra! Í staðinn fyrir tölur eru titlar á lögum á bingóspjaldinu. Við spilum lögin og þú krossar við ef lagið er á þínu spjaldi. Tingó sameinar keppnisskap, frábæra tónlist og alvöru partýstemningu þar sem allir kunna textann (eða þykjast allavega kunna hann!), syngja hástöfum með og jafnvel skella sér á dansgólfið. Þetta getur einfaldlega ekki klikkað! Tingó er tilvalið fyrir starfsmannagleði, þorrablót, Oktoberfest, brúðkaup, gæsa og steggjapartý, afmæli, jólaboð, áramótagleði og eiginlega öll partý þar sem fólk vill skemmta sér! Hægt er að velja um Tingó á íslensku, ensku eða blöndu af hvoru tveggja. Við getum líka aðlagað lagavalið að tilefninu og hópnum svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Tingó, því það er miklu skemmtilegra að syngja BINGÓ!

Svartími:15 mín

Hentar fyrir

FyrirtækjaskemmtunAfmæliBrúðkaupÁrshátíðÚtskrift

Tæknilegt

Tími

Uppsetning

15 mín

Flutningur

30 mín - 1 klst

Kemur með

Hljóðkerfi

Umsagnir

1 umsögn
T

Tinna Kristín Þórðardóttir

Staðfest
12. sep. 2026
5.0
Fyrirtækjaskemmtun

Þér gæti líkað við

Verð fer eftir verkefninu

Ókeypis og óskuldbindandi