Þarftu DJ fyrir næsta partý, brúðkaup eða árshátíð? Á Outro finnur þú reynda DJ-a á Íslandi, berð saman prófíla og sendir fyrirspurn beint. Fáðu tilboð og bókaðu á nokkrum mínútum.
34 af 68 birta byrjunarverð á prófílnum sínum. Miðgildið er 50.000 kr. og helmingurinn liggur á bilinu 30.000 kr. til 80.000 kr., en byrjunarverð er ekki tilboð: endanlegt verð fer eftir lengd, fjölda gesta og hvort ferðakostnaður bætist við.
Skiptingin eftir landshlutum: Höfuðborgarsvæðið (55), Suðurland (6), Norðurland (5), Vesturland (1). Allir taka að sér viðburði um land allt, en sá sem býr nær kemur oftast betur út þegar ferðakostnaður er talinn með.
Afbóki listamaðurinn eða mæti hann ekki er endurgreitt að fullu, hversu stutt sem er í viðburðinn. Outro ber færslugjöldin af endurgreiðslunni.
Greiðslan fer í gegnum Outro og listamaðurinn fær hana eftir viðburðinn. Engin millifærsla fyrirfram á reikningsnúmer sem þú þekkir ekki.
Hver bókun fær eina kröfu fyrir fullri upphæð á kennitölu fyrirtækisins, og bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út.
Skilmálarnir í heild, þar á meðal hvað gerist ef þú afbókar sjálf/ur, eru á notendaskilmálum Outro.
Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.
Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.
Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum.
Samþykktu tilboðið og greiddu með korti eða kröfu. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn.
DJ spilar tónlist fyrir gestina, blandar lögum saman og les stemninguna á dansgólfinu. Hann sér um tónlistina frá fyrstu gestum og fram á nótt og sumir koma með hljóðkerfi og ljós.
Á Outro er safn af reyndum DJ-um á Íslandi. Þú getur skoðað prófíla, hlustað á efni og lesið umsagnir frá fyrri viðburðum áður en þú sendir fyrirspurn.
Verð fer eftir DJ-anum, viðburðinum og lengd. Á Outro sérð þú grunnverð hjá mörgum DJ-um og getur fengið tilboð án skuldbindingar.
Best er að bóka eins fljótt og auðið er, sérstaklega fyrir vinsælar dagsetningar eins og verslunarmannahelgi eða jólahátíðir. Á Outro sérð þú strax hvort DJ er laus á valinni dagsetningu.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.