Jólaballahljómsveitin Fjörkarlar
Fjörkarlar hafa verið í jólaballabransanum í fleiri ár en við kærum okkur um að muna og búum því yfir gríðarlegri reynslu, en hjá okkur er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi! Við erum í góðu sambandi við Grýlu, Leppalúða og alla jólasveinana þrettán svo við getum útvegað eins marga jólasveina og þörf er á, fyrir jólatrésskemmtunina þína, til að hún heppnist fullkomlega. Í gegnum tíðina höfum við séð um fjölskylduskemmtanir fyrir hópa af ýmsum stærðum og gerðum. Stærstu jólaböllin hafa verið fyrir yfir 2.000 manns, en þau minnstu fyrir innan við 20 manns. Við sníðum okkur stakk eftir vexti. Meðal viðskiptavina, í áranna rás, eru: * Starfsmannafélag Icelandair * Siglfirðingafélagið í Reykjavík * Starfsmannafélag LOGOS-lögmannastofu * Starfsmannafélag Hörpu * Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands * Starfsmannafélag Íslensku óperunnar * CP-félagið * Starfsmannafélag stjórnarráðsins * Reykjavíkurborg * Orkuveita Reykjavíkur * Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins * Arion banki * RÚV * Stöð 2 * Actavis * Eimskipafélag Íslands * Öryrkjabandalag Íslands * Íslensk ættleiðing * Starfsmannafélag ríkisendurskoðunar * Samhentir o.m.fl.
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Tími
Uppsetning
30 mín
Kemur með
Þarf að vera til staðar
Umsagnir
Umsagnir utan Outro
5 umsagnirListamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.
“Takk fyrir frábært jólaball, þetta var æði! Við höfum fengið svo mikið hrós um ykkur og þið náðuð vel til kakkanna. Við bókum ykkur aftur næstu jól!”
“Þið kunnið vel til verka, stemmningin er góð og þið fáið alltaf bestu jólasveinana með ykkur.”
“Takk kærlega fyrir gott jólaball — þetta var mjög skemmtilegt!”
“Fullorðna fólkið skemmtir sér ekki síður en börnin — þetta er gleðistund á hverju ári!”
“Takk fyrir okkur, þetta var frábær jólatrésskemmtun. Þið kunnið þetta greinilega upp á 10.”
Þér gæti líkað við
Ókeypis og óskuldbindandi



