ARON VALUR

ARON VALUR

Tónlistarmaður · DJ / Plötusnúður
Höfuðborgarsvæðið

Um mig

Aron Valur er 20 ára íslenskur leikari og skemmtikraftur sem margir þekkja úr hlutverki Orra í þáttunum Skólinn eða af YouTube, þar sem hann heldur úti skemmtiþættinum Streymið\. Báðir þættirnir hafa notið mikilla vinsælda meðal ungs fólks og gert Aron að kunnuglegu andliti á Íslandi. Aron býður upp á kraftmikið 30 mínútna partýshow fyrir grunnskólaböll þar sem markmiðið er að fá allan salinn með í stemninguna! Hugmyndin kviknaði þegar Aron tók eftir því að á skólaböllum væru ekki alltaf allir með í fjörinu. Hann vildi skapa skemmtun sem sameinar krakkana og fær sem flesta til að taka þátt, líka þá sem eru að mæta á sitt fyrsta ball eða þora ekki alveg út á dansgólfið. Með míkrófóninn í hönd, vinsælustu lögin og fullt af orku fær Aron krakkana til að syngja, dansa og taka virkan þátt. Með honum er DJ Sakki, sem sér um tónlistina og heldur stemningunni gangandi. Showið er sérstaklega sniðið að grunnskólaaldri og aðlagað að hverjum aldurshópi. Showið hét áður Partývélin en er nú bókað undir nafni Arons Vals. Nýtt nafn, sama geggjaða stemningin! Vantar dagskrá fyrir allt ballið? 🎧 Auk 30 mínútna showsins eru í boði pakkar með DJ Sakka sem hægt er að bóka í gegnum Aron Val og geta dekkað allt ballið, frá upphafi til enda. Sjáðu stemninguna! 🎥 https://www.tiktok.com/@partyvelin/video/7614918476695735554 Bókanir og fyrirspurnir 📩 Aron kemur meðal annars fram á grunnskólaböllum og skólaárshátíðum, en einnig er hægt að senda fyrirspurnir vegna annarra viðburða. Netfang: aronvalurg@gmail.com Instagram: @aron.valur Meira en bara skemmtiatriði! 🎉

Svartími:4 klst

Myndir og myndefni

Hentar fyrir

AnnaðÁrshátíðPartýBarnaskemmtun

Tæknilegt

Tími

Flutningur

30 mín - 2 klst

Þarf að vera til staðar

HljóðnemiHljóðkerfi

Þér gæti líkað við

Verð fer eftir verkefninu
Ókeypis og óskuldbindandi