Outro er bókunarvettvangur á Íslandi þar sem þú getur fundið og bókað listamenn, tónlistarfólk, DJ-a og skemmtikrafta fyrir hvaða viðburð sem er. Allt ferlið (fyrirspurn, tilboð og greiðsla) fer fram á einum stað.
Afbóki listamaðurinn eða mæti hann ekki er endurgreitt að fullu, hversu stutt sem er í viðburðinn. Outro ber færslugjöldin af endurgreiðslunni.
Greiðslan fer í gegnum Outro og listamaðurinn fær hana eftir viðburðinn. Engin millifærsla fyrirfram á reikningsnúmer sem þú þekkir ekki.
Hver bókun fær eina kröfu fyrir fullri upphæð á kennitölu fyrirtækisins, og bókunin er staðfest um leið og krafan er gefin út.
Skilmálarnir í heild, þar á meðal hvað gerist ef þú afbókar sjálf/ur, eru á notendaskilmálum Outro.
Skoðaðu verifiseraða íslenska listamenn eftir flokki, dagsetningu og staðsetningu.
Engin skuldbinding. Segðu listamanninum frá viðburðinum og dagsetningunni.
Fáðu formlegt tilboð með öllum upplýsingum.
Samþykktu tilboðið og greiddu með korti eða kröfu. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn.
Á Outro finnur þú DJ-a, hljómsveitir, tónlistarfólk og skemmtikrafta um allt land á einum stað, getur borið saman verð og sent fyrirspurnir beint.
Þú velur listamann, sendir fyrirspurn þar sem þú lýsir viðburðinum, listamaður svarar með formlegu tilboði og þú gengur frá bókun og greiðslu á einum stað. Allt er skjalfest og gagnsætt.
Verð er mismunandi eftir listamanni, tegund viðburðar og lengd. Á Outro getur þú borið saman verð og fengið tilboð frá mörgum listamönnum áður en þú ákveður þig.
Já, það kostar ekkert að senda fyrirspurn á Outro. Þú borgar aðeins þegar þú samþykkir tilboð og gengur frá bókun.
Sendu fyrirspurn og fáðu tilboð á nokkrum mínútum. Ókeypis og án skuldbindingar.