Kynningarpakki
Tingó tónlistarbingó
Bingó · Höfuðborgarsvæðið
Staðfestur listamaður á Outro
Um Tingó tónlistarbingó
Tingó með Hrund Scheving Tónlistarbingó með takti, tónum og geggjuðu fjöri þar sem allir geta sungið með. Tingó er eins og venjulegt bingó, nema miklu skemmtilegra! Í staðinn fyrir tölur eru titlar á lögum á bingóspjaldinu. Við spilum lögin og þú krossar við ef lagið er á þínu spjaldi. Tingó sameinar keppnisskap, frábæra tónlist og alvöru partýstemningu þar sem allir kunna textann (eða þykjast allavega kunna hann!), syngja hástöfum með og jafnvel skella sér á dansgólfið. Þetta getur einfaldlega ekki klikkað! Tingó er tilvalið fyrir starfsmannagleði, þorrablót, Oktoberfest, brúðkaup, gæsa og steggjapartý, afmæli, jólaboð, áramótagleði og eiginlega öll partý þar sem fólk vill skemmta sér! Hægt er að velja um Tingó á íslensku, ensku eða blöndu af hvoru tveggja. Við getum líka aðlagað lagavalið að tilefninu og hópnum svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Tingó, því það er miklu skemmtilegra að syngja BINGÓ!
Tæknilýsing
Umsagnir
2 umsagnirMagnþóra Kristjánsdóttir
Staðfest“Takk fyrir-þetta var æði!”
Bóka Tingó tónlistarbingó
Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.
- Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
- Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
- Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl