Kynningarpakki
Rebekka Magnúsdóttir
Veislustjóri · Höfuðborgarsvæðið
Staðfestur listamaður á Outro
Um Rebekka Magnúsdóttir
Rebekka er leikkona og spunaleikari hjá Improv Ísland. Hún hefur mjög góða reynslu sem veislustjóri og notar sterkan húmor og jákvæðan persónuleika til þess að passa upp á að kvöldið flæði og að allir njóti sín, bæði gestir og veisluhaldarar. Rebekka nær mjög vel til fólks og kann að koma fólki í stuðið en líka halda sig til hlés ef salurinn eða kvöldið kallar á það. Hún sér til þess að dagskráin renni áfram snuðrulaust, tekur jákvæð á móti hverju því óvænta sem kann að gerast, og býður upp á skemmtileg atriði þegar hentar. T.d. uppistand, vinnustaðagrín, söng-grínlög, ýmsa leiki og rapp frá MCRappbekku. Ef þú vilt koma fólki í stuð, hafa góða stemmningu og fá peppkonu aldarinnar, heyrðu þá í Rebekku fyrir veisluna þína. Rebekka tekur einnig að sér hópefli fyrir vinnustaði.
Myndir
4Myndirnar eru í fullri upplausn eins og listamaðurinn hlóð þeim upp.
Tæknilýsing
Bóka Rebekka Magnúsdóttir
Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.
- Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
- Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
- Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl



