Jólaballahljómsveitin Fjörkarlar
Hljómsveit
Staðfestur listamaður á Outro
Um Jólaballahljómsveitin Fjörkarlar
Fjörkarlar hafa verið í jólaballabransanum í fleiri ár en við kærum okkur um að muna og búum því yfir gríðarlegri reynslu, en hjá okkur er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi! Við erum í góðu sambandi við Grýlu, Leppalúða og alla jólasveinana þrettán svo við getum útvegað eins marga jólasveina og þörf er á, fyrir jólatrésskemmtunina þína, til að hún heppnist fullkomlega. Í gegnum tíðina höfum við séð um fjölskylduskemmtanir fyrir hópa af ýmsum stærðum og gerðum. Stærstu jólaböllin hafa verið fyrir yfir 2.000 manns, en þau minnstu fyrir innan við 20 manns. Við sníðum okkur stakk eftir vexti. Meðal viðskiptavina, í áranna rás, eru: * Starfsmannafélag Icelandair * Siglfirðingafélagið í Reykjavík * Starfsmannafélag LOGOS-lögmannastofu * Starfsmannafélag Hörpu * Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands * Starfsmannafélag Íslensku óperunnar * CP-félagið * Starfsmannafélag stjórnarráðsins * Reykjavíkurborg * Orkuveita Reykjavíkur * Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins * Arion banki * RÚV * Stöð 2 * Actavis * Eimskipafélag Íslands * Öryrkjabandalag Íslands * Íslensk ættleiðing * Starfsmannafélag ríkisendurskoðunar * Samhentir o.m.fl.
Tilefni: Fyrirtækjaskemmtun, Jólahlaðborð, Skemmtistaður, Barnaskemmtun, Jólaball
Myndir
5Myndirnar eru í fullri upplausn eins og listamaðurinn hlóð þeim upp.
Tæknilýsing
Umsagnir
Umsagnir utan Outro
5 umsagnirListamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.
“Þið kunnið vel til verka, stemmningin er góð og þið fáið alltaf bestu jólasveinana með ykkur.”
“Takk fyrir frábært jólaball, þetta var æði! Við höfum fengið svo mikið hrós um ykkur og þið náðuð vel til kakkanna. Við bókum ykkur aftur næstu jól!”
“Takk kærlega fyrir gott jólaball — þetta var mjög skemmtilegt!”
“Fullorðna fólkið skemmtir sér ekki síður en börnin — þetta er gleðistund á hverju ári!”
“Takk fyrir okkur, þetta var frábær jólatrésskemmtun. Þið kunnið þetta greinilega upp á 10.”
Bóka Jólaballahljómsveitin Fjörkarlar
Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.
Senda fyrirspurn- Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
- Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
- Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl




