Happy Studio
Skemmtikraftur · Höfuðborgarsvæðið
Staðfestur listamaður á Outro
Um Happy Studio
Happy Studio er innstungan i partýið, dansduo sem kemur öllum á dansgólfið. Dansskemmtun í hæsta gæðaflokki. Einnig hægt að bóka þau í Singalong Pubquiz og tónlistarbingó sem hefur svo sannarlega slegið í gegn.Tilvalið í gæsanir, steggjanir, brúðarvalskennslu, afmæli, árshátíðir, brúðkaup eða bara sem hópefli. "Anna og Frikki eru einstök á allan hátt! Að vera með þeim í dansi er eins og að fá gleðisprautu í rassinn! Útgeislun þeirra og pepp er á við heilt orkuver og þau gætu hreinlega vakið steindauðan mann upp og látið hann dansa trylltan dans! Sannkallaðir gleðigjafar!” Edda Björgvins
Tilefni: Afmæli, Fyrirtækjaskemmtun, Annað, Brúðkaup, Útskrift, Árshátíð, Partý, Jólahlaðborð, Útihátíð, Ráðstefna, Gæsun, Skemmtistaður, Barnaskemmtun, Tónleikar, Steggjun, Ættarmót
Myndir
5Myndirnar eru í fullri upplausn eins og listamaðurinn hlóð þeim upp.
Tæknilýsing
Umsagnir
Umsagnir utan Outro
8 umsagnirListamaðurinn skráði þessar sjálfur. Þær eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina.
“"Gleðigjafar, stuðpinnar og fagfólk fram í fingurgóma. Hugmyndarík, skapandi og skemmtileg og hafa fengið Kópavog til að iða af lífi við ófá tilefni þar sem allar kynslóðir sameinast í stórkostlegu danspartýi."”
“Stuðboltar og hrikalega skemmtileg”
“Ég mæli með Friðrik Agna og Önnu hjá Happy Studio. Þau héldu stuðinu uppi alla veisluna. Þau eru algjörlega mögnuð”
“Þetta var svo skemmtilegt í alla staði. Gestirnir höfðu sérstaklega orð á því hvað þetta var skemmtilegt og flott hjá ykkur”
“Ég er búin að fá Önnu til að koma og skemmta á nokkrum viðburðum hjá mér og það er alltaf jafn skemmtilegt! Allir koma úr tíma hjá henni með risa stórt bros framan á sér, sáttir með að hafa þurft að fara aðeins út fyrir kassan og hafa gaman. Hún er ótrúlega góð í að fá alla með sér og stemningin verður yndisleg. Ég mæli svo mikið með að bóka hana og byrja gamanið, þú munt ekki sjá eftir því! Svo er hún svo hæfileikarík, bara hvað má bjóða þér? Hún getur reddað því, sko minnsta mál!”
“Ég og maðurinn minn fórum í danskennslu hjá Önnu hjá Happy Studio fyrir brúðkaupið okkar og upplifunin var frábær í alla staði! Anna lét okkur líða svo vel og gerði kennsluna einstaklega skemmtilega og afslappaða. Við komum til hennar sem algjörir byrjendur en fórum út með fullt af sjálfstrausti og hlökkum nú til að dansa saman á stóra deginum. Við getum ekki mælt nógu mikið með Önnu og eigum klárlega eftir að fara í fleiri tíma hjá henni.”
“Friðrik er geislandi skemmtikraftur, flinkur dansari, ber einstaklega góða persónu og kemur öllum í gott skap!”
“"Anna og Frikki eru einstök á allan hátt! Að vera með þeim í dansi er eins og að fá gleðisprautu í rassinn! Útgeislun þeirra og pepp er á við heilt orkuver og þau gætu hreinlega vakið steindauðan mann upp og látið hann dansa trylltan dans! Sannkallaðir gleðigjafar!””
Bóka Happy Studio
Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.
Senda fyrirspurn- Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
- Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
- Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl




