Sex í sveit!

Sex í sveit!

Leikfélagið Verðandi

Föstudagur, 13. nóvember

Frumsýning · Húsið opnar 19:30 · Hefst 20:00 · eftir 17 daga

Fjölbrautaskólinn í GarðabæSkólabraut 6, 210 Garðabær

Um viðburðinn

Hvað gerir þú þegar viðhaldið þitt mætir upp í bústað á meðan kærastan þín er á svæðinu? Benni hefur skipulagt umfangsmikla helgi uppi í bústað með viðhaldinu sínu Sóleyju og vini sínum Ragnari eftir að Þórunn, kærasta Benna, er á leið út á land að heimsækja móður sína. Góð ráð verða dýr þegar Þórunn hættir við að fara og Benni neyðist til að hylja sannleikann fyrir Þórunni. Ekki hjálpar til þegar tveir pantaðir kokkar mæta á svæðið og dragast inn í misskilninginn sem aldrei virðist taka enda. Allir þykjast vita allt, en enginn veit í raun neitt.

Sex í Sveit er sprenghlægilegt gamanleikrit sem hefur verið sett í nýrri og ferskari búning í uppsetningu leikfélagsins Verðandi.

Staðsetning

Skólabraut 6, 210 Garðabær

Fá leiðsögn