Fyrir skóla, félög og fyrirtæki
Seldu miða á viðburðinn þinn
Skólaball, leikrit, árshátíð, tónleikar eða vorsýning. Þú setur viðburðinn inn, við förum yfir hann og opnum söluna, og kaupendur fá miðann í símann.
Þú getur vistað uppkast og klárað seinna.

Sex í sveit!
Leikfélagið Verðandi
Laugardagur, 28. nóvember 2026
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Svona birtist viðburður á Outro. Þessi er í sölu núna.
Svona gengur það fyrir sig
Fjögur skref
Þú setur viðburðinn inn
Nafn, staður, dagur, plakat og miðaverð. Uppkastið vistast og þú getur klárað það seinna.
Við förum yfir hann
Outro lítur yfir viðburðinn og opnar miðasöluna. Þú færð tilkynningu þegar hann er kominn í loftið.
Þú deilir hlekknum
Kaupendur þurfa engan aðgang. Þeir velja fjölda miða, borga með korti og fá miðann strax.
Við borgum út
4-5 virkum dögum eftir viðburðinn leggjum við miðasöluna inn á reikning félagsins, að frádregnu þjónustugjaldi og færslugjöldum.
Fyrir kaupendur
Miðinn sem fólk man eftir
- Miðinn í símanum
- Kaupandinn fær miðann í tölvupósti og getur vistað hann í Apple Wallet eða Google Wallet.
- Áminning fyrir kvöldið
- Við minnum kaupendur á viðburðinn þremur dögum áður og aftur að morgni dagsins.
- Gestalisti við dyrnar
- Við útbúum gestalista sem dyraverðir opna í símanum. Þeir leita að nafni eða miðanúmeri.
Verð
Hvað það kostar
Gjöldin dragast frá útborguninni. Kaupandinn borgar bara miðaverðið.
- Þjónustugjald, 2%
- Af seldum miðum. Fyrir miðasöluna, miðana í símanum og gestalistann.
- Færslugjöld, 1,4% + 15 kr
- Kortafyrirtækið tekur þetta af hverri greiðslu, ekki hverjum miða. Pöntun með tveimur miðum er ein greiðsla.
- Dæmi: pöntun upp á 5.000 kr.
- Þjónustugjald 100 kr., færslugjöld 85 kr. Þú færð 4.815 kr.
Það sem fólk spyr að
Hvar get ég selt miða á skólaball eða félagsviðburð?
Á Outro. Skólinn, félagið eða fyrirtækið setur viðburðinn inn, Outro fer yfir hann og opnar söluna, og kaupendur borga með korti og fá miðann í símann. Ekki þarf listamannsprófíl. Þjónustugjaldið er 2% af seldum miðum og færslugjöld kortafyrirtækisins bætast við.
Hvað kostar þetta?
Það kostar ekkert að byrja. Af seldum miðum tökum við 2% þjónustugjald og kortafyrirtækið 1,4% + 15 kr af hverri greiðslu, og hvort tveggja dregst frá útborguninni. Frír aðgangur ber ekkert gjald.
Hvenær fáum við greitt?
4-5 virkum dögum eftir viðburðinn. Við þurfum kennitölu og reikningsnúmer félagsins, sem þú skráir í stillingunum á Mínum viðburðum.
Þurfa kaupendur aðgang að Outro?
Nei. Þeir slá inn nafn og netfang og fá miðann sendan.
Hver ákveður miðaverðið og sætafjöldann?
Þú. Þegar sætin eru uppseld lokast salan sjálf, og ef viðburðurinn er frír er nóg að setja 0 kr. í verðið.
Byrjaðu á uppkasti
Þú þarft símanúmer og netfang. Viðburðurinn fer ekki til okkar fyrr en þú sendir hann.