Outro vs Melda
Outro vs Melda
Melda er viðburðakerfi með gestalista, meldingum og markaðstorgi þjónustuaðila. Outro er bara fyrir bókun á listamönnum. Við skoðuðum melda.is 13. september 2026.
Outro
BókunarvettvangurÞú sendir fyrirspurn, færð tilboð frá listamanninum og borgar í gegnum Outro.
- 210 listamenn á Outro
- Kort eða krafa í heimabanka
- Allt endurgreitt ef listamaðurinn hættir við
Melda
ViðburðakerfiHeldur utan um gestalista og meldingar (RSVP). Á markaðstorginu eru salir, veisluþjónusta, ljósmyndarar og listamenn.
- Ókeypis fyrir einstaklinga
- QR-miðar og drykkjamiðar fyrir gesti
- Engin verð á opnum prófílum listamanna
Eiginleikar í einni töflu
Grænt = já, gult = að hluta, rautt = nei.
| Eiginleiki | Outro | Melda |
|---|---|---|
Listamenn og skemmtikraftar Outro: 210 listamenn · Melda: 23 tónlistarmenn og 12 skemmtikraftar | ||
Verð sýnilegt án innskráningar Outro: 81 með uppgefið verð · Melda: Ekkert verð á opnum prófílum | ||
Ókeypis að hafa samband við listamann | ||
Gestalisti og meldingar (RSVP) | ||
Stuðningur á íslensku |
Hvenær á að velja hvora?
Veldu Outro ef þú vilt:
- Senda fyrirspurn, fá tilboð og borga á einum stað
- Borga með korti eða kröfu í heimabanka
- Fá allt endurgreitt ef listamaðurinn hættir við
- Sjá einkunnir sem koma bara frá bókunum á Outro
Veldu Meldu ef þú vilt:
- Halda utan um gestalista og meldingar
- Senda gestum QR-miða og drykkjamiða
- Finna sal, veisluþjónustu og ljósmyndara á sama stað
Algengar spurningar
Hver er stærsti munurinn á Outro og Meldu?+
Melda er viðburðakerfi. Þar heldur þú utan um gestalista, meldingar og QR-miða, og á markaðstorginu eru salir, veisluþjónusta, ljósmyndarar og listamenn. Outro er bara fyrir bókun á listamönnum: þú sendir fyrirspurn, færð tilboð og borgar í gegnum Outro.
Hvernig borga ég listamanninum á Outro?+
Þegar þú samþykkir tilboð borgar þú með korti eða kröfu í heimabanka. Outro greiðir listamanninum eftir viðburðinn. Hætti listamaðurinn við færðu allt endurgreitt.
Er meira úrval listamanna á Outro eða Meldu?+
Á Outro eru 210 listamenn. Á markaðstorgi Meldu voru 23 tónlistarmenn og 12 skemmtikraftar þegar við skoðuðum það 13. september 2026, auk sala, veisluþjónustu og annarra þjónustuaðila.
Hvor síðan er ódýrari?+
Verðið ræðst af listamanninum, ekki síðunni. Melda er ókeypis fyrir einstaklinga. Á Outro kostar fyrirspurn ekkert og Outro leggur ekkert ofan á verð listamannsins.
Prófaðu Outro fyrir næsta viðburð
Ókeypis að skoða listamenn og senda fyrirspurn. Þú borgar ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð.