Marína Ósk
Brúðkaup - Jarðarfarir - Afmæli - Bakgrunnstónlist - Samsöngur - Útskriftir - Ráðstefnur - Fordrykkur - Árshátíðir - Jólahlaðborð - Litlu jól - Tónleikar - Stofutónleikar... og ýmislegt þar á milli. Vantar þig söng í athöfn, jazzaða bakgrunnsstemmingu eða vilt halda huggulega stofutónleika við kertaljós? Söngkonan Marína Ósk tekur að sér tónlistarflutning á fjölbreyttum viðburðum. Hún kemur ýmist fram ein, og þá með gítarinn eða píanóið að vopni, eða með skemmtilegu samverkafólki. Hún er ein aðalsöngvara hljómsveitarinnar The Bookstore Band, sem kemur fram fyrir fullu Húsi Máls og Menningar öll kvöld vikunnar og er því vel að sér í fjölbreyttum tónlistarstílum. Bakgrunnur hennar liggur í jazzinum og er hún tvöfaldur handhafi Íslensku tónlistarverðlaunanna, m.a. fyrir söng í flokki jazz og blús. Marína býr í Árborg en veigrar sér ekki við að aka heiðina ef giggs ef þörf!
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Tími
Uppsetning
15 mín
Flutningur
15 mín - 2 klst
Kemur með
Þarf að vera til staðar



