Kynningarpakki

Gunnar Kr

Töframaður

Staðfestur listamaður á Outro

Bóka Gunnar Kr

Um Gunnar Kr

Hvort sem þig vantar skemmtun fyrir örfáa eða fjölmarga — vinsamlegast hafðu samband og sjáðu hvað ég get gert fyrir þig! Oftar en ekki gerast töfrabrögðin í höndum áhorfenda og þótt ég sérhæfi mig í töfrabrögðum í nálægð, er líka hægt að útfæra þau fyrir hópa og svið. Ég get sýnt á íslensku og/eða ensku, auk fleiri tungumála. Ég er félagi í Hinu íslenska töframannagildi, International Brotherhood of Magicians og eini Íslendingurinn sem er félagi í The Magic Circle og Society of American Magicians.

Tilefni

Fyrirtækjaskemmtun, Afmæli, Annað, Árshátíð, Brúðkaup, Jólahlaðborð, Partý, Útskrift, Þorrablót, Útihátíð, Ráðstefna, Skemmtistaður, Jólaball, Barnaskemmtun, Gæsun, Steggjun, Ferming, Ættarmót

Myndir

4

Myndirnar eru í fullri upplausn eins og listamaðurinn hlóð þeim upp.

Tæknilýsing

Kemur með
Hljóðkerfi, Hljóðnemi / Hausar

Umsagnir

7 umsagnir
K

Kolgríma Ír

Staðfest
27. nóv. 2026
4.0
Fyrirtækjaskemmtun

“mjög skemmtilegt að fá hann í partý!”

V

Vikingur Freyr

Staðfest
25. nóv. 2026
5.0
Fyrirtækjaskemmtun

“Takk kærlega fyrir okkur! Hann var algjörlega meiriháttar!”

H

Hilmar

Staðfest
18. nóv. 2026
5.0
Afmæli

“Gunnar Kr var frábær og skildi eftir sig glaða og ringlaða tíu ára krakka sem skildu ekkert í töfrunum sem þau urðu vitni að. Í eitt skiptið hélt afmælisbarnið að hún væri búin að nappa aðferðina hans en svo kom í ljós að Gunnar Kr var bara hreinlega að töfra. Hún endaði á að spyrja foreldrana hvernig við fengum hann frá Hogwarts.”

Þ

Þórkatla Víkingsdóttir

Staðfest
21. sep. 2026
5.0
Fyrirtækjaskemmtun

“Ég get 100% mælt með Gunnari Kr hann kom til okkar í veislu og skemmti gestum með frábærum töfrabrögðum.”

G

Guðrún María Jónsdóttir

Staðfest
31. ágú. 2026
5.0
Fyrirtækjaskemmtun

“Frábær! Mæli hiklaust með að bóka hann:)”

H

Hrafn Auðarson

Staðfest
6. ágú. 2026
5.0
Steggjun

“Frábær töframaður! Allt uppá 10”

Umsagnir utan Outro

2 umsagnir

Þessar eru ekki staðfestar í gegnum bókun á Outro og hafa engin áhrif á einkunnina. Þær sem eru merktar Outro bárust okkur beint frá kaupandanum, hinar skráði listamaðurinn.

Kristinn Á. FriðfinnssonKvöldskemmtun í heimahúsi, eftir mat.

“„Vinahópurinn hefur komið reglulega saman í 37 ár. Við höfum aldrei — aldrei — skemmt okkur eins vel og þegar þú komst og sýndir okkur töfrabrögðin. Það verður erfitt að toppa þetta!“”

Andrea Rói, forstöðumaður ReykjadalsSkráð af OutroSumarbúðir

“Það var alveg hreint frábært að fá Gunnar Kr. upp í Reykjadal með sín sniðugu töfrabrögð. Áhorfendurnir sátu spenntir og fylgdust með. Hann náði vel til hópsins og virkjaði öll til þátttöku. Hann var umtalaður það sem eftir var af degi og mörg eru enn að pæla í hvernig hann fór eiginlega að þessu. Takk fyrir komuna í Reykjadal, kæri Gunnar Kr. töframaður!”

Bóka Gunnar Kr

Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.

  • Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
  • Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
  • Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Senda fyrirspurn

Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl