Kynningarpakki
Emil Lorange
DJ / Plötusnúður · Höfuðborgarsvæðið
Staðfestur listamaður á Outro
Um Emil Lorange
Emil Lorange er einn af eftirsóttustu plötusnúðum landsins og hefur á síðustu fimm árum skipað sér sess meðal fremstu plötusnúða í íslensku skemmtanalífi. Emil hefur spilað á flestum helstu skemmtistöðum og hátíðum landsins, þar á meðal Auto, HAX, Nínu, Edition, Þjóðhátíð, Kótilettunni, Írskum dögum og Oktoberfest, auk þess að hafa komið fram erlendis. Reynslan nær þó langt út fyrir skemmtistaðina. Emil hefur séð um tónlistina í fjölda brúðkaupa, afmæla, árshátíða, fyrirtækjaviðburða og einkasamkvæma af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem um er að ræða 15 ára afmæli, fimmtugsafmæli eða stóra árshátíð er markmiðið alltaf það sama: að skapa réttu stemninguna og gera viðburðinn eftirminnilegan. Það sem einkennir Emil er hæfileikinn til að lesa salinn, aðlaga tónlistarvalið að hverjum viðburði og setja sinn eigin svip á upplifunina. Með fjölbreyttan tónlistarsmekk, mikla reynslu og sterka tilfinningu fyrir stemningu er hver viðburður sniðinn að gestunum. Umfram allt leggur Emil áherslu á fagmennsku, traust og framúrskarandi þjónustu, allt frá fyrstu samskiptum til síðasta lags.
Myndir
4Myndirnar eru í fullri upplausn eins og listamaðurinn hlóð þeim upp.
Tónlist
Vinsæl lög
🎧 Smelltu á lag til að opna spilara
Tæknilýsing
Bóka Emil Lorange
Sendu fyrirspurn á Outro og fáðu tilboð beint frá listamanninum.
- Fyrirspurn er ókeypis og óskuldbindandi
- Þú færð verðtilboð beint frá listamanninum
- Þú greiðir ekkert fyrr en þú samþykkir tilboð
Kynningarpakki frá Outro · Skoða prófíl



