Handbók listamanna

Hér er allt sem þú þarft að vita til að nota Outro vel: hvernig fyrirspurnir og tilboð virka, hvað gerist þegar bókun er staðfest, hvernig reikningar og útborganir ganga fyrir sig og hvað ber að varast. Handbókin er ítarleg viljandi. Notaðu efnisyfirlitið til að stökkva á það sem á við þig.

1. Hvernig Outro virkar

Outro er markaðstorg sem tengir þig við skipuleggjendur viðburða og sér um greiðsluna. Þú ræður sjálf/ur verði, hvaða fyrirspurnum þú svarar og hvaða daga þú ert laus.

  1. 1Fyrirspurn berst. Skipuleggjandi sendir fyrirspurn um ákveðinn dag, stað og tilefni. Þú færð tilkynningu í appinu, tölvupósti og SMS.
  2. 2Þú sendir tilboð. Formlegt tilboð með verði og því sem er innifalið. Verð sem þú nefnir bara í spjallinu er ekki tilboð og bókar ekkert.
  3. 3Skipuleggjandi samþykkir og greiðir. Bókunin verður til við greiðsluna, ekki við það að þið verðið sammála í spjallinu.
  4. 4Viðburðurinn fer fram. Þá fyrst verður reikningurinn til.
  5. 5Þú sendir Outro reikning fyrir fullu umsömdu gjaldi.
  6. 6Outro greiðir þér út 4-5 virkum dögum eftir viðburðinn, að frádreginni 10% þóknun.

Þrjú atriði sem stoppa flest

Kennitala og bankareikningur þurfa að vera skráð undir Stillingar áður en kemur að útborgun, prófíllinn þarf að vera staðfestur af Outro til að birtast opinberlega, og reikningur verður að berast eftir viðburðinn til að uppgjörið klárist.

2. Prófíllinn þinn

Prófíllinn ræður því hvort skipuleggjendur finna þig yfirleitt. Hann er líka það eina sem þeir hafa til að meta þig áður en þeir senda fyrirspurn.

Til að birtast opinberlega

  • Outro staðfestir prófílinn. Það að klára nýskráningu dugar ekki eitt og sér: óstaðfestir prófílar birtast hvorki í listanum yfir listamenn, á forsíðunni né í leitarvélum.
  • Prófíllinn má ekki vera falinn. Stillingin „Fela prófíl“ tekur þig út úr öllum opinberum listum.
  • Lýsing, að minnsta kosti einn flokkur og staðsetning þurfa að vera útfyllt, annars telst síðan of rýr og er ekki sýnd leitarvélum.

Það sem skilar mestu

  • Prófílmynd. Án myndar færðu sjálfgefna staðgengilsmynd og tapar stigi í röðuninni.
  • Lýsing, 60 stafir hið minnsta. Gátlistinn í prófílritlinum sættir sig við 20 stafi en tillögukerfið okkar refsar fyrir styttri texta en 60 stafi.
  • Lágmarksverð, og hakaðu við að sýna það. Verð sem er falið gefur ekki stigið og setur þig aftast í verðröðun.
  • Hakaðu við alla viðburðaflokka sem þú tekur að þér. Flokkasían er hörð sía: með engan flokk hverfurðu alveg þegar skipuleggjandi síar eftir tegund viðburðar.
  • Myndband. Aðeins myndbönd sem þú hleður upp (MP4, MOV eða WEBM) spila sjálfkrafa í listanum. Tenglar á YouTube, Vimeo, TikTok og Instagram gera það ekki.
  • Lágmarksverð er heildarverð fyrir eitt gigg, ekki tímagjald. Of lágt verð er ekki lesið sem kostakaup heldur sem upplýsingaleysi.
  • Ekki setja leitarorð eingöngu í lýsinguna. Leitin á Outro leitar í nafni, flokkum og staðsetningu, aldrei í lýsingartextanum.

Myndir og myndbönd

  • Hámark 5 skrár í galleríinu (myndir og myndbönd samanlagt), 50 MB hver.
  • Leyfð snið: JPG, PNG, WEBP, GIF, MP4, MOV, WEBM og AVI. SVG og HEIC eru ekki tekin gild.
  • Innfelldir myndbandstenglar telja ekki með í þessum 5, svo notaðu tengla fyrir aukaefni.

Röðun í listanum yfir listamenn

  • Röðunin ræðst fyrst og fremst af flettingum á prófílinn þinn. Þess vegna borgar sig að deila Outro-slóðinni þinni sjálf/ur.
  • Nýir listamenn fá aukavægi sem fjarar út á fyrstu 7 dögunum. Kláraðu prófílinn strax í byrjun til að nýta það.
  • Efsti hluti listans stokkast upp einu sinni á sólarhring innan sömu getuþreps, svo það er eðlilegt að færast til um nokkur sæti án þess að þú hafir breytt neinu.
  • Staðsetning er ekki sía heldur vægi: skipuleggjendur á öðru svæði sjá þig áfram, þú raðast bara neðar hjá þeim.

Nafnabreyting breytir slóðinni þinni

Ef þú breytir listamannanafninu breytist vefslóðin á prófílinn sjálfkrafa og gamla slóðin hættir að virka. Uppfærðu tengla sem þú hefur deilt.

Spotify

Tónlistarfólk getur tengt Spotify. Nafnaleit velur fyrstu niðurstöðu án staðfestingar og hittir stundum á rangan flytjanda, svo staðfestu alltaf tenginguna með „Er þetta ekki þú?“ eða límdu inn slóðina á þinn Spotify-flytjanda.

3. Dagatal og framboð

Dagatalið stýrir því hvenær þú birtist í leit. Það er öflugt verkfæri og líka auðveldasta leiðin til að gera sig ósýnilega/n óvart.

  • Lokaður dagur tekur þig alveg út úr listanum þegar skipuleggjandi síar eftir þeirri dagsetningu. Lokaðu bara dögum sem þú getur raunverulega ekki unnið.
  • Það er ekki hægt að loka hluta úr degi. Lokanir eru heilir dagar.
  • Staðfest bókun lokar ekki deginum sjálfkrafa. Ef þú vilt ekki fleiri fyrirspurnir þann dag þarftu að loka honum sjálf/ur í dagatalinu.
  • Lokun sem varð til við höfnun („Upptekin/n allan daginn“) er hægt að taka af aftur í dagatalinu.
  • Google-dagatalið þitt lokar ekki dögum á Outro. Tengingin er einstefna: bókanir frá Outro birtast í dagatalinu þínu, aldrei öfugt.
  • Ef þú endurnýjar áskriftarslóðina á dagatalið hættir gamla slóðin strax að virka og þú þarft að líma þá nýju inn í dagatalsforritið þitt.

Athugaðu að skipuleggjandi getur enn sent þér fyrirspurn á lokaðan dag. Formið sýnir honum viðvörun en stöðvar hann ekki, svo þú getur fengið fyrirspurn á dag sem þú merktir upptekinn.

4. Fyrirspurnir og tilboð

Þú ræður sjálf/ur hverju þú svarar. En fyrirspurn sem er ekki svarað deyr af sjálfu sér, og þá er tækifærið farið.

Svarfresturinn

Fresturinn er helmingur þess tíma sem eftir er fram að viðburðinum, aldrei styttri en einn sólarhringur og aldrei lengri en 120 dagar. Það er engin föst vika.

Viðburður eftirÞú hefur um það bil
1 ár120 daga (hámarkið)
30 daga15 daga
10 daga5 daga
4 daga2 daga
1 dagfram að viðburðinum sjálfum
  • Þú færð eina áminningu áður en fresturinn rennur út, og hún er aðeins send á milli 10:00 og 21:00.
  • Skrifir þú í spjallið heldurðu fyrirspurninni lifandi: raunveruleg skilaboð síðustu 48 klukkustundir stöðva sjálfvirku lokunina.
  • Þegar fresturinn er liðinn fer fyrirspurnin í „útrunnin“ og hún kemur ekki aftur.

Að senda tilboð

  • Verð í spjallinu er ekki tilboð. Fyrirspurnin færist ekki áfram fyrr en þú ýtir á „Senda tilboð“.
  • Sláðu inn heildarverðið (brúttó). Þóknun Outro dregst frá því, þú átt ekki að bæta henni ofan á.
  • Þú getur breytt tilboðinu þangað til það er samþykkt. Eftir það er það læst. Verðbreyting núllstillir gildistímann og lætur skipuleggjandann vita aftur.
  • Rennur tilboðið út án svars? Ef 3 dagar eða meira eru í viðburðinn opnast fyrirspurnin sjálfkrafa aftur og þú getur sent nýtt tilboð.
  • Ekki reikna með að tilboðið verði að bókun þín megin. Aðeins skipuleggjandinn getur samþykkt, og bókunin er ekki staðfest fyrr en greiðslan gengur í gegn.

Að hafna fyrirspurn

Þú velur eina af tveimur ástæðum, og valið hefur raunveruleg áhrif á dagatalið þitt:

ÁstæðaHvað gerist
Upptekin/n allan daginnDagurinn lokast sjálfkrafa í dagatalinu þínu og þú færð ekki fleiri fyrirspurnir þann dag.
AnnaðDagurinn helst opinn. Notaðu þetta þegar það er tíminn, verðið eða staðsetningin sem gengur ekki upp.

Höfnunartextinn fer beint á skipuleggjandann

Skýringin sem þú skrifar í höfnunargluggann er send orðrétt í tölvupósti til skipuleggjandans undir fyrirsögninni „Skilaboð frá listamanni“ og birtist líka í spjallinu. Skrifaðu hana eins og þú værir að tala við viðskiptavin, aldrei minnispunkta eða staðgengilstexta.

Losnirðu aftur eftir að hafa hafnað geturðu ýtt á „Ég er laus aftur“. Það opnar þráðinn og hreinsar lokunina á deginum. Skipuleggjandinn fær hins vegar enga tilkynningu um það, svo sendu honum skilaboð sjálf/ur.

Breytingatillögur fyrir bókun

  • Áður en tilboð er samþykkt má hvor aðili sem er stungið upp á nýrri dagsetningu, tíma, lengd eða staðsetningu.
  • Tillagan verður að breyta einhverjum reit. Að skrifa nýju dagsetninguna bara í skýringartextann er hafnað sjálfkrafa.
  • Aðeins ein tillaga getur verið opin í einu, og á meðan hún er opin hverfa hnapparnir „Senda tilboð“ og „Hafna“.
  • Svaraðu innan 7 daga, eða fyrir viðburðinn ef hann er nær. Eftir það rennur tillagan út.
  • Þú getur ekki samþykkt þína eigin tillögu, aðeins dregið hana til baka.

5. Spjallið og samskiptareglur

Spjallið er hluti af kerfinu og er vaktað. Það er ekki einkasamtal og það eru skýr mörk á því hvað má fara þar fram áður en bókun er staðfest.

  • Ekki gefa upp símanúmer, netfang eða samfélagsmiðla áður en bókunin er staðfest. Tengiliðaupplýsingar opnast sjálfkrafa um leið og bókun er komin á.
  • Ekki setja bankareikning eða kennitölu í skilaboð og ekki biðja um að fá greitt með millifærslu framhjá kerfinu.
  • Ekki færa bókun eða greiðslu út fyrir Outro þegar þið kynntust í gegnum kerfið. Það telst sniðganga og er brot á skilmálum.
  • Það má semja um verð, ræða tímasetningar og segja „ég heyri í þér“ án þess að gefa upp númer.
  • Það má tengja á þinn eigin Instagram, vefsíðu eða Spotify í lýsingunni á prófílnum þínum.
  • Ekki setja fram persónulegar árásir, hótanir, hatursorðræðu, kynferðislegt efni, óumbeðnar auglýsingar eða persónuupplýsingar annarra.

Hvernig eftirlitið virkar

Skilaboð fyrir bókun eru lesin sjálfvirkt, bæði með einfaldri leit að tengiliðaupplýsingum og með gervigreind sem les þráðinn í heild. Það er í samræmi við 10. lið notendaskilmálanna.

Merking er ekki refsing. Allt sem kerfið merkir fer til yfirferðar hjá starfsfólki og allar ákvarðanir eru teknar af fólki, ekki sjálfvirkt.

Afleiðingar sniðgöngu

Outro getur takmarkað eða lokað aðgangi vegna sniðgöngu. Ef gigg sem varð til í gegnum Outro er gert upp utan kerfis getur Outro einnig gefið út kröfu á þig fyrir þóknuninni með 14 daga greiðslufresti.

Sértu órótt gagnvart öðrum notanda geturðu lokað á hann undir Stillingar og tilkynnt hann til okkar. Tilkynningar eru teknar alvarlega, en tilhæfulausar tilkynningar geta líka haft afleiðingar fyrir þinn eigin aðgang.

6. Þegar bókun er staðfest

Bókun verður til við greiðslu, ekki við samkomulag. Hvenær hún telst staðfest fer eftir því hvernig skipuleggjandinn greiðir.

Greiðsluleiðir og hvenær bókun telst staðfest

GreiðsluleiðHvenær bókun er staðfest
KortUm leið og greiðslan gengur í gegn.
Krafa í heimabankaEkki fyrr en krafan er raunverulega greidd. Útgefin krafa heldur ekki deginum frátekinni fyrir þig.

Hvenær skipuleggjandinn greiðir

Tími í viðburðGreiðsla
Meira en 10 dagar20% innborgun strax og 80% krafa með gjalddaga 10 dögum fyrir viðburð, eða 100% strax.
3-10 dagar100% af heildarupphæð strax.
0-2 dagar100% af heildarupphæð strax.

Kláraðu kennitölu og bankareikning strax

Um leið og bókun er staðfest birtist borði sem biður um kennitölu og bankareikning. Þetta er ekki formsatriði:

Kennitölu vantar og þá stöðvast öll útborgunarlotan sem þú ert í, ekki bara þín greiðsla. Bankareikning vantar og þá dettur línan þín út úr millifærsluskránni þótt greiðslan sé skráð sem afgreidd, sem þýðir að peningurinn fer hvergi.

Bankareikningurinn er 12 tölustafir (0000-00-000000). Berist greiðslan ekki á réttum tíma skaltu byrja á að athuga hvort hvort tveggja sé rétt skráð undir Stillingar.

Ef skipuleggjandi greiðir ekki kröfuna á gjalddaga fær hann áminningar í allt að 3 daga, þó aldrei fram yfir upphaf viðburðar. Ógreidd bókun getur aldrei verið virk eftir að viðburður hefst. Þú þarft ekki að rukka viðskiptavininn sjálf/ur, það er okkar hlutverk.

7. Breytingar á staðfestri bókun

Eftir að greitt hefur verið er bókunin bundin. Breytingar fara í gegnum „Breyta bókun“ og það ert þú sem sendir beiðnina, ekki skipuleggjandinn.

  • Þú getur beðið um breytingu á verði, upphafstíma og lengd.
  • Dagsetningu er ekki hægt að breyta eftir að greitt hefur verið. Ef dagurinn þarf að breytast er eina leiðin að afbóka og bóka upp á nýtt. Færðu dagsetninguna áður en tilboðið er samþykkt ef þú sérð það fyrir.
  • Verðlækkun tekur gildi strax án samþykkis. Verðhækkun, breyttur tími og breytt lengd bíða svars frá skipuleggjanda og ekkert breytist á meðan.
  • Beiðnin rennur út eftir 7 daga eða daginn fyrir viðburðinn, hvort sem kemur á undan. Eftir að viðburðardagurinn er liðinn er ekki hægt að senda beiðni.
  • Aðeins ein beiðni getur verið opin í einu. Ný beiðni leysir þá eldri af hólmi, svo lagfærðu frekar en að senda margar.
  • Auð skýring er ekki tekin gild. Skrifaðu raunverulega ástæðu.

Verðbreyting eftir að innborgun er greidd

Ef verðinu er breytt eftir að 20% innborgun hefur verið greidd fellur eftirstandandi krafa niður. Láttu okkur vita á outro@outro.is um leið og slík breyting er samþykkt svo við getum gengið frá nýrri kröfu og viðskiptavinurinn sitji ekki uppi með ekkert til að greiða.

8. Afbókanir og forföll

Reglurnar eru ólíkar eftir því hvor aðilinn hættir við. Þetta er sá hluti skilmálanna sem kemur flestum á óvart, svo lestu hann áður en þú þarft á honum að halda.

Ef skipuleggjandinn hættir við

Tími í viðburðEndurgreittÞinn hlutur
Meira en 14 dagarInnborgun endurgreidd að fullu0 kr.
7-14 dagarInnborgun ekki endurgreidd50% af innborguninni
3-7 dagar50% af heildarupphæð40% af heildarupphæð
Minna en 3 dagarEkkert endurgreitt90% af heildarupphæð

Uppgjör vegna afbókunar er handvirkt hjá okkur og fer ekki sjálfkrafa í næstu útborgunarlotu. Hafðu samband ef þú sérð það ekki skila sér.

Ef þú hættir við eða mætir ekki

  • Skipuleggjandinn fær alltaf 100% endurgreiðslu, sama hversu langt er í viðburðinn, og þú færð ekkert greitt. Það gildir líka þótt þú látir vita með margra vikna fyrirvara.
  • Afbókun er óafturkræf og fellir sjálfkrafa niður breytingabeiðni sem þú varst með í gangi.
  • Að mæta ekki (no-show) hefur sömu fjárhagslegu afleiðingar og getur auk þess leitt til viðvörunar á aðganginn þinn.

Óviðráðanleg atvik

Ef viðburður getur ekki farið fram vegna veðurs, öryggisaðstæðna eða dauðsfalls er fyrsta úrræðið alltaf að reyna að færa hann á nýja dagsetningu án kostnaðar. Takist það ekki er málið metið sérstaklega með sanngirni að leiðarljósi. Hafðu samband við okkur strax, ekki afbóka fyrst og spyrja svo.

9. Reikningar: hvernig þeir eiga að vera

Þegar þú færð bókun í gegnum Outro gefur þú sjálf/ur út reikning á okkur fyrir giggið. Outro má ekki búa hann til fyrir þig.

Gátlisti fyrir reikninginn

  • Stílaður á Outro ehf. (kt. 480126-2110).
  • Fullt umsamið gjald (brúttó), ekki 90% og ekki nettó upphæðin eftir þóknun.
  • Línan merkt „undanþegið VSK“. Listflutningur er undanþeginn virðisaukaskatti, og bókarinn okkar staðfestir að þetta orðalag sé réttara en „0% VSK“.
  • Dagsetning og staður viðburðarins koma skýrt fram svo hægt sé að rekja reikninginn á rétta bókun.
  • Reikningsnúmer úr þinni eigin númeraröð ef þú heldur bókhald. Kerfið stingur upp á númeri en gengur ekki úr skugga um að það sé einstakt.
  • Ekki fyrir viðburðinn. Reikningur verður til eftir að flutningurinn hefur farið fram, og kerfið hafnar reikningi sem er sendur á undan.

Þú þarft ekki VSK-númer

Listflutningur er undanþeginn VSK óháð því hvort þú ert með rekstur skráðan á eigin kennitölu eða VSK-númer. Þú mátt gefa út reikning án VSK-númers.

Tækjaleiga, hljóðkerfi og veislustjórn

Þetta er grátt svæði og það er ekki það sama og listflutningur. Tækjaleiga og hljóðkerfisleiga bera VSK, og veislustjórn telst almennt ekki listflutningur þótt hún sé stundum túlkuð sem leiklist. Nái reikningurinn þinn yfir slíkt skaltu leita ráða hjá þínum endurskoðanda eða hafa samband við okkur áður en þú sendir hann.

Kerfið sjálft meðhöndlar allar bókanir sem listflutning. Ef þjónustan þín er blönduð í eðli sínu er það þitt mat (og þíns bókara) hvernig reikningurinn er sundurliðaður.

10. Hvernig þú sendir reikninginn

Það eru þrjár gildar leiðir. Veldu eina og notaðu bara hana, annars enda tveir reikningar á sömu bókuninni.

  1. 1Svaraðu reikningsbeiðninni okkar í tölvupósti með reikninginn í PDF-viðhengi. Hann skráist þá sjálfkrafa á rétta útborgun.
  2. 2Búðu hann til eða hlaðið honum upp í appinu undir Greiðslur.
  3. 3Notaðu þitt eigið bókhaldskerfi (til dæmis Payday, Konto eða Inkasso) og láttu það senda reikninginn á outro@outro.is. Hann skilar sér sjálfkrafa til okkar.
  • Ekki senda tvisvar. Ef kerfið þitt sendi reikninginn á outro@outro.is skaltu ekki líka búa hann til í appinu. Hann birtist sem „Í yfirferð“ undir Greiðslur og við tengjum hann við bókunina.
  • Þú færð staðfestingarpóst þegar reikningurinn er móttekinn. Hafirðu fengið hann þarftu ekki að gera meira.
  • Skráin verður að vera PDF og að hámarki 10 MB, og reikningsnúmerið mest 64 stafir.
  • Þú færð að hámarki eina sjálfvirka áminningu um hverja útborgun. Ekki reikna með að við höldum áfram að minna þig á.

Allir reikningar, bæði þínir og þóknunarreikningar Outro, eru geymdir undir Reikningar og þú getur sótt PDF hvenær sem er. Staðan á hverjum reikningi er ein af þremur: Móttekinn, Greiddur eða Ógreiddur.

11. Þóknun, VSK og uppgjör

Þóknun Outro er 10% af hverju giggi. Hún er ekki innheimt sérstaklega heldur skuldajöfnuð á móti útborguninni þinni.

Dæmi um uppgjör á 100.000 kr. giggi

LiðurFjárhæð
Reikningurinn þinn á Outro (undanþeginn VSK)100.000 kr.
Þóknun Outro, 10% (VSK innifalinn)10.000 kr.
Millifært á þig90.000 kr.
  • Outro gefur út þóknunarreikning á þig með 24% VSK. Hann er stofnaður þegar greiddur og skuldajafnaður á móti útborguninni, svo þú greiðir hann aldrei sérstaklega.
  • VSK er innifalinn í þóknuninni, hann leggst ekki ofan á. Þú færð 90% af umsömdu gjaldi.
  • Þín eigin útborgun (listflutningur) er undanþegin VSK. VSK-talan sem þú sérð í ársyfirlitinu er VSK af þóknun Outro, ekki VSK sem þú hefur innheimt.
  • Sértu VSK-skráð/ur getur þú nýtt VSK af þóknunarreikningnum sem innskatt á næsta VSK-uppgjöri.

Ef þú heldur eigið bókhald

  • Bókaðu uppgjörið í tvennu lagi svo reikningurinn þinn teljist að fullu greiddur: millifærslan (90.000 kr.) plús þóknunarreikningur Outro (10.000 kr.) sem er skuldajafnaður á móti.
  • Outro greiðir aldrei inn á kröfu í heimabanka. Uppgjörið kemur alltaf sem bein millifærsla á skráða bankareikninginn þinn.
  • Hafi kerfið þitt stofnað kröfu skaltu loka henni eða fella hana niður þegar uppgjörið berst. Annars getur hún farið í innheimtuferli á eftirstöðvum.
  • Seðilgjald eða tilkynningagjald innheimtukerfisins þíns er ekki hluti af umsömdu gjaldi og greiðist ekki af Outro.

12. Útborgun

Greitt er út eftir viðburðinn, þegar full greiðsla hefur borist frá viðskiptavininum.

  • 4-5 virkum dögum eftir viðburðinn fer útborgunin af stað, að því gefnu að viðskiptavinurinn hafi greitt að fullu.
  • 20% innborgun ein og sér dugar ekki. Útborgun fer ekki af stað fyrr en bókunin er fullgreidd.
  • Greitt er með beinni millifærslu á skráða bankareikninginn þinn, aldrei inn á kröfu.
  • Ef bókun er afbókuð áður en komið er að útborgun fellur áætluð útborgun niður.
  • Yfirlitið undir Greiðslur sýnir útborganir sem eru þegar frágengnar. Nýleg bókun sem bíður uppgjörs birtist þar ekki strax.

Vantar peninginn?

Athugaðu fyrst hvort kennitala og bankareikningur séu rétt skráð undir Stillingar. Þetta eru langalgengustu ástæður þess að útborgun stöðvast. Sé allt rétt skráð, hafðu samband við okkur á outro@outro.is og við röktum málið.

Reikningurinn þinn er ekki skilyrði fyrir því að millifærslan fari fram, en hann er skilyrði fyrir því að bókhaldið sé rétt hjá okkur báðum. Sendu hann alltaf.

13. Eigin bókanir án þóknunar

Bókanir sem þú aflar sjálf/ur, án nokkurrar milligöngu Outro, mátt þú skrá í kerfið án þóknunar.

Undir „Búa til bókun“ á listamannasvæðinu skráir þú viðskiptavininn, viðburðinn og umsamið verð, og velur hvernig greitt er:

ValkosturHvað þýðir hann
Greiða í gegnum OutroViðskiptavinurinn fær greiðslulink frá okkur og greiðir 100% strax. Þú nýtur greiðsluöryggisins þótt engin þóknun sé tekin.
Greitt utan kerfisÞið gerið upp beint. Bókunin er skráð sem staðfest og fullgreidd, og nýtist þér sem yfirlit og í dagatalinu.
  • Engin þóknun er tekin af þessum bókunum. Þetta er skýrt undanskilið í 9. lið notendaskilmálanna.
  • Þetta á ekki við um viðskiptavin sem þú kynntist í gegnum Outro. Að skrá slíka bókun hér til að komast hjá þóknun er sniðganga.
  • Sláðu inn rétt netfang og símanúmer viðskiptavinarins. Boðið sem hann fær gildir í 7 daga.

14. Umsagnir og stjörnugjöf

Umsagnir eru það sem selur þig þegar þú ert ekki í herberginu. Þær eru líka eina efnið á prófílnum sem þú stýrir ekki sjálf/ur.

  • Aðeins skipuleggjandi sem bókaði þig getur skrifað umsögn, og þá eina umsögn á hverja bókun.
  • Þú getur hvorki breytt, eytt né svarað umsögn. Sé umsögn röng eða brjóti hún skilmála skaltu tilkynna hana til okkar.
  • Stjörnueinkunnin þín er einfalt meðaltal allra umsagna. Það er engin tímaviktun og ekki hægt að undanskilja staka umsögn.
  • Þú færð enga tilkynningu þegar umsögn berst. Kíktu á umsagnirnar á listamannasvæðinu þínu.
  • Skipuleggjandi fær eina áminningu um að gefa umsögn, daginn eftir viðburðinn. Sé umsögn þér mikilvæg er langbest að biðja um hana sjálf/ur strax eftir giggið.
  • Þú getur falið stjörnur og umsagnir á prófílnum undir Stillingar. Einkunnin heldur áfram að safnast, hún birtist bara ekki.

Umsagnir utan Outro

  • Hafirðu engar Outro-umsagnir enn máttu bæta við allt að 10 tilvísunum í fyrri verkefni, með nafni, tilefni og 10 til 1.000 stafa umsögn.
  • Þær birtast sem óstaðfestar tilvitnanir og breyta ekki stjörnueinkunninni þinni.
  • Þær fara í gegnum efnisyfirferð. Ekki búa til umsagnir sem þú fékkst aldrei.

15. Tilkynningar og stillingar

Fyrirspurnir eru tímabundnar. Það hvernig þú stillir tilkynningar ræður því hvort þú nærð þeim í tæka tíð.

  • SMS er fljótasta leiðin til að ná í þig. Slökkvirðu á SMS (annaðhvort á aðalrofanum eða á „Fyrirspurnir“) færðu nýjar fyrirspurnir aðeins í tölvupósti og inni í appinu.
  • Slökkt á „Áminningar“ tekur af bæði áminninguna um svarfrestinn og áminninguna um ólesin skilaboð. Sú síðarnefnda er ekki reynd aftur síðar.
  • Tölvupóstur um nýja fyrirspurn er sendur óháð stillingum, svo þú missir ekki af fyrirspurn þótt allt annað sé slökkt.
  • Tilkynningar inni í appinu (bjallan) eru alltaf skráðar. Push stýrir bara hvort síminn lætur vita.
  • „Kynningar“ er eina stillingin sem er sjálfgefið slökkt. Allt annað er kveikt þegar aðgangurinn er stofnaður.
  • Sé rólegt í spjallinu getur önnur tilkynning um sama þráð beðið í allt að 30 mínútur, nema minna en 3 dagar séu í viðburðinn.

Undir Stillingar stýrir þú líka sýnileika prófílsins, hvort umsagnir birtast og hvaða skipuleggjendur eru útilokaðir frá því að hafa samband við þig.

16. Ársyfirlit og skattskil

Ársyfirlitið er til þess að þú (og þinn bókari) sjáið heildarmyndina á einum stað þegar kemur að skattskilum.

  • Yfirlitið nær yfir eitt tekjuár í senn. Gigg eru talin eftir dagsetningu viðburðar, ekki eftir því hvenær peningurinn barst.
  • Aðeins frágengnar útborganir teljast með. Viðburður sem er afstaðinn en útborgun ekki frágengin birtist ekki enn.
  • Fjórar lykiltölur: Heildartekjur (brúttó), Þóknun Outro, VSK af þóknun (24%) og Útborgað (nettó).
  • VSK-talan er VSK af þóknun Outro, ekki VSK á þínum tekjum. Þínar tekjur af listflutningi eru undanþegnar VSK.
  • Vanti reikningsnúmer við eldri þóknun er það söguleg gloppa en ekki ógreidd þóknun. VSK-tölurnar eru réttar eftir sem áður og við sendum þér afrit ef þú þarft.

Upplýsingaskylda vettvangsins

Outro fellur undir reglur um upplýsingaskyldu stafrænna vettvanga og mun skila Skattinum upplýsingum um tekjur listamanna á vettvanginum fyrir tekjuárið 2026. Það er meðal ástæðna fyrir því að við biðjum um rétta kennitölu og bankareikning.

Það er engin lágmarksfjárhæð: ein uppgerð bókun á árinu dugar til að þú sért á skilunum.

Þetta er ekki skattaráðgjöf

Við getum sagt þér hvað stendur í yfirlitinu og hvernig uppgjörið okkar á milli virkar. Við ráðleggjum þér hins vegar ekki um VSK-skráningu, rekstrarform eða frádrátt. Leitaðu til þíns endurskoðanda um það.

17. Umboðsmenn og fleiri listamenn

Þú getur stýrt fleiri en einum listamanni af sama aðgangi, hvort sem þú ert umboðsmaður eða kemur fram undir fleiri en einu nafni.

TegundHvenær á hún viðHvernig tilkynningar berast
Annar listamaðurRaunveruleg önnur manneskja sem þú hefur umboð fyrir.Listamaðurinn fær SMS á sitt eigið númer. Tölvupóstur og tilkynningar í appinu fara á þig sem umboðsmann.
AukalistamaðurÞú sjálf/ur undir öðru listamannsnafni.Enginn aðgangur, ekkert símanúmer og engin SMS. Allt fer á þig.
  • Skráðu rétt símanúmer viðkomandi listamanns þegar þú bætir við „Öðrum listamanni“. Það númer fær framboðsfyrirspurnir og er innskráningin hans.
  • Aukalistamann er ekki hægt að breyta í sjálfstæðan aðgang síðar. Veldu rétta tegund strax.
  • Skiptu yfir á réttan listamann efst á síðunni áður en þú svarar. Fyrirspurnir, bókanir, dagatal og stillingar fylgja alltaf þeim sem er valinn.
  • Listamaður sem skráir sig inn með sínu númeri sér hvorki spjall, tilboð né fyrirspurnalistann. Ekki vísa honum á að „svara í spjallinu“.

18. Samantekt: hvað má og hvað má ekki

Sé þetta það eina sem þú lest, þá er það þetta.

  • Gefa út reikning þótt þú sért ekki með VSK-númer. Listflutningur er undanþeginn VSK.
  • Ráða sjálf/ur verði, hvaða fyrirspurnum þú svarar og hvaða daga þú ert laus.
  • Skrá bókanir sem þú aflar sjálf/ur í kerfið án þóknunar.
  • Nota þitt eigið bókhaldskerfi og láta það senda reikninginn á outro@outro.is.
  • Biðja um breytingu á verði, tíma eða lengd á staðfestri bókun.
  • Semja um eða taka greiðslu utan Outro fyrir bókun sem varð til í gegnum kerfið.
  • Gefa upp símanúmer, netfang eða samfélagsmiðla í spjallinu áður en bókun er staðfest.
  • Reikninga nettó upphæðina. Reikningurinn á alltaf að vera fyrir fullu umsömdu gjaldi.
  • Gefa út reikning fyrir viðburðinn eða senda hann tvisvar.
  • Búast við að Outro búi reikninginn til fyrir þig. Það má okkar bókari ekki.
  • Kennitala og bankareikningur eru forsenda útborgunar. Án þeirra stöðvast hún.
  • Afbókun eða forföll af þinni hálfu þýða 100% endurgreiðslu til skipuleggjanda og enga greiðslu til þín.
  • Tækjaleiga, hljóðkerfi og veislustjórn geta borið VSK og eru ekki sjálfkrafa listflutningur.

Spurningar?

Er eitthvað óljóst, eða lendirðu í einhverju sem handbókin svarar ekki? Sendu okkur línu á outro@outro.is eða hringdu. Við viljum miklu frekar svara spurningu áður en gigg fer fram en leysa úr misskilningi eftir á.

Sjá einnig algengar spurningar og notendaskilmála. Þar sem handbókin og skilmálarnir stangast á gilda skilmálarnir.