Eyða aðgangi

Þú getur eytt Outro-aðgangnum þínum hvenær sem er, í appinu eða á outro.is. Hér er hvað gerist og hvað ekki.

Svona eyðir þú honum

Skráðu þig inn, opnaðu Stillingar og skrunaðu neðst. Þar er hnappurinn „Eyða aðgangnum mínum“. Hann er eins hjá listamönnum og skipuleggjendum.

Hvað eyðist

  • Prófíllinn þinn, myndir og myndbönd
  • Tilkynningar og tækið sem er skráð fyrir tilkynningar í símann
  • Fyrirspurnir og spjall sem engin bókun hangir á
  • Innskráningin sjálf, svo aðgangurinn opnast ekki aftur

Hvað stendur eftir

Eigir þú bókun eða reikning að baki er aðgangurinn gerður nafnlaus í stað þess að honum sé eytt. Nafn, netfang, símanúmer, kennitala og mynd fara af honum, en bókanirnar, reikningarnir og útborganirnar standa eftir án þín. Bókhaldslög krefjast þess að við geymum þau í sjö ár.

  • Skilaboð sem þú sendir í fyrirspurnum annarra
  • Listamenn sem þú sérð um sem umboðsmaður og salir sem hafa verið bókaðir. Þeir eru faldir, ekki eytt.
  • Viðburðir sem miðar hafa selst á

Hvað getur stoppað eyðinguna

Bókun framundan, viðburður með seldum miðum, útborgun eða greiðsla í vinnslu. Aðrir treysta á það, svo appið segir þér hvað það er og leyfir þér að eyða þegar það er frágengið.

Kemstu ekki inn?

Sendu okkur línu á outro@outro.is úr netfanginu eða með símanúmerinu sem er á aðganginum og biddu um eyðingu. Við svörum og göngum frá því.