The Bookstore Band

The Bookstore Band

Hljómsveit
Höfuðborgarsvæðið

Um okkur

The Bookstore Band spilar á hverju kvöldi klukkan átta í gömlu bókabúðinni í Húsi Máls og menningar á Laugavegi og hefur gert það í fjögur ár, þrjá tíma í senn af þekktum lögum. Árið 2025 urðu giggin 392. Hljómsveitin spilar líka í brúðkaupum og einkapartýjum og á árshátíðum og fyrirtækjaviðburðum, til dæmis á árshátíð Stjórnarráðsins í Laugardalshöll og hjá Air Atlanta í Gamla Bíói, og hefur spilað erlendis, meðal annars í Dúbaí, á Spáni og á Suðurskautslandinu. Kjarninn er sjö manns: Ingólfur Sigurðsson trommari, sem stýrir bandinu, Marína Ósk Þórólfsdóttir söngkona, Ragnar Ólafsson úr Árstíðum, gítarleikararnir Kjartan Baldursson og Lárus Magnússon og bassaleikararnir Ingólfur Magnússon og Brynjar Páll Björnsson. Þau skiptast á og eru með fleiri spilara á bak við sig, svo bandið getur spilað á fleiri en einum stað sama kvöldið.

152 fylgjendur

Vinsæl lög

1
Two Friends

Two Friends

The Bookstore Band

2:03

🎧 Smelltu á lag til að opna spilara

Myndir og myndefni

Hentar fyrir

FyrirtækjaskemmtunAfmæliAnnaðÁrshátíðBrúðkaup

Þér gæti líkað við

Verð fer eftir verkefninu