Óskar Magnússon
Tónlistarmaður
Höfuðborgarsvæðið
Ég er klassískur gítarleikari með meistaragráðu í gítarleik frá San Francisco. Ég tek að mér fjölbreytt tilefni þar sem lifandi gítartónlist skapar fallega og persónulega stemningu, hvort sem um ræðir veislur, brúðkaup, jarðarfarir eða aðrar athafnir. Ég býð upp á klassíska gítartónlist sem og útsetningar á lögum að eigin vali. Fyrir brúðkaup og jarðarfarir get ég útsett sérstök óskalög fyrir klassískan gítar og þannig gert tónlistina persónulega fyrir hvert tilefni. Einnig er hægt að bóka mig fyrir ljúfa bakgrunnstónlist í veislum, móttökum og öðrum viðburðum.
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
BrúðkaupJólahlaðborðTónleikarJarðarför
Tæknilegt
Tími
Uppsetning
15 mín
Flutningur
15 mín - 3 klst
Kemur með
Hljóðkerfi
Þér gæti líkað við
Verð frá50.000 kr.
Ókeypis og óskuldbindandi

