Hljómsveitin Fjörkarlar
Fjörkarlar hafa verið í jólaballabransanum í fleiri ár en við kærum okkur um að muna og búum því yfir gríðarlegri reynslu, en hjá okkur er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi! Við erum í góðu sambandi við Grýlu, Leppalúða og alla jólasveinana þrettán svo við getum útvegað eins marga jólasveina og þörf er á fyrir jólaballið þitt, til að það heppnist fullkomlega. Í gegnum tíðina höfum við séð um fjölskylduskemmtanir fyrir hópa af ýmsum stærðum og gerðum. Stærstu jólaböllin hafa verið fyrir yfir 2.000 manns, en þau minnstu fyrir innan við 20 manns. Við sníðum okkur stakk eftir vexti. Meðal viðskiptavina undanfarinna ára eru: * Starfsmannafélag Icelandair * Siglfirðingafélagið í Reykjavík * Starfsmannafélag LOGOS-lögmannastofu * Starfsmannafélag Hörpu * Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands * Starfsmannafélag Íslensku óperunnar * CP-félagið * Starfsmannafélag stjórnarráðsins * Reykjavíkurborg * Orkuveita Reykjavíkur * Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins * Arion banki * RÚV * Stöð 2 * Actavis * Eimskipafélag Íslands * Öryrkjabandalag Íslands * Íslensk ættleiðing * Starfsmannafélag ríkisendurskoðunar * Samhentir o.m.fl.
Myndir og myndefni
Hentar fyrir
Tæknilegt
Tími
Uppsetning
30 mín
Kemur með
Þarf að vera til staðar
Þér gæti líkað við
Ókeypis og óskuldbindandi



