Allt fyrir viðburðinn: tjöld, hljóðkerfi, ljós, húsgögn, hoppukastalar og fleira.
Exton
Vinsælt veislutjald á sterkri álgrind með hvítum plastdúk. 6m breidd, stækkanlegt í bilum: - 6x6m (36 fm) fyrir ca. 30-50 manns - 9x6m (54 fm) fyrir ca. 40-80 manns - 12x6m (72 fm) fyrir ca. 70-100 manns - 15x6m (90 fm) fyrir ca. 80-140 manns Hægt að leigja án þjónustu eða með flutningi, uppsetningu og niðurtekt.
Stærri útgáfan af vinsælustu veislutjöldunum, 8m breidd á sterkri álgrind: - 6x8m (48 fm) fyrir ca. 35-70 manns - 9x8m (72 fm) fyrir ca. 70-100 manns - 12x8m (96 fm) fyrir ca. 70-100 manns - 15x8m (120 fm) fyrir ca. 120-200 manns - 18x8m (144 fm) fyrir ca. 150-250 manns
Fallegt topptjald sem er einfalt að setja upp. 4x4m (16 fm). Hægt er að setja fleiri en eitt tjald saman.
Stærri útgáfan af topptjaldinu, 5x5m (25 fm). Einfalt í uppsetningu og hægt að tengja fleiri tjöld saman.
Gala Pop-Up tjöldin eru fyrirferðarlítil í flutningi og fljót í uppsetningu. Gala 20 er 2x3m (6 fm). Hægt að nota eingöngu með þaki og velja hvaða hliðar eru lokaðar.
Gala 30 er 3x3m (9 fm). Fyrirferðarlítið í flutningi, fljótt í uppsetningu og hægt að velja hvaða hliðar eru lokaðar.
Stærsta Pop-Up tjaldið, 3x4,5m (13,5 fm). Fyrirferðarlítið í flutningi og fljótt í uppsetningu.
Hljóðkerfispakki til leigu. Fylgihlutir: standar fyrir hátalara, A&H ZED-10FX mixer, hljóðnemi og standur, minijack snúra og kaplar.
Öflugri hljóðkerfispakki til leigu. Fylgihlutir: bassabotnar, standar fyrir hátalara, A&H ZED-10FX mixer, hljóðnemi og standur, minijack snúra og kaplar.
Nettur súluhljóðkerfispakki til leigu. Fylgihlutir: standar fyrir hátalara, A&H ZED-10FX mixer, hljóðnemi og standur, minijack snúra og kaplar.
Hágæða hljóðkerfi frá Meyer Sound, RCF og NEXO. Valið fer eftir eðli verkefnisins og þörfum viðskiptavinarins. Hægt að leigja eingöngu búnað eða með uppsetningu, keyrslu og niðurtekt.
Mixerar í mörgum stærðum, m.a. frá Allen & Heath og Midas Consoles. Exton aðstoðar við val á borði sem hentar hverju verkefni.
Allar gerðir hljóðnema fyrir viðburði: þráðlausir sönghljóðnemar, næluhljóðnemar, spangarhljóðnemar, púlthljóðnemar og hljóðnemar á hljóðfæri. Merki: Shure, Audix, DPA, Sennheiser, AKG, Mipro o.fl.
Alhliða þjónusta við lýsingu á viðburðum af öllum stærðargráðum: hönnun, val á ljósum, uppsetning, forritun og keyrsla viðburða.
Atvinnuljóskastari (hybrid beam/spot) til leigu fyrir tónleika og stærri viðburði.
Nettur LED moving head ljóskastari til leigu, hentar í minni og stærri uppsetningar.
LED ljósabar til leigu fyrir svið og viðburði.
Öflugur LED wash ljóskastari til leigu fyrir stærri svið og sjónvarpsverkefni.
Ljósastýringar í mörgum stærðum, aðallega frá MA Lighting. Exton aðstoðar við val á borði sem hentar hverju verkefni.
Borðljós til leigu fyrir veislur og viðburði.
Ljósaseríur til leigu, skapa hlýlega stemningu í veislutjöldum og sölum.
LED kerti til leigu, öruggur og fallegur borðbúnaður fyrir veislur.
LED ljósastangir til leigu, setja lit og stemningu á veislur og viðburði.
Lýsing fyrir bari og veitingasvæði í veislum og á viðburðum.
Uppblásnir stólar til leigu, létt og skemmtileg lausn fyrir partý og viðburði.
Uppblásnir sófar til leigu, þægileg lounge-svæði á augabragði.
Veislustólar til leigu fyrir veislur, brúðkaup og aðra viðburði.
Samanbrjótanleg langborð til leigu, standard veisluborð sem raðast vel í tjöld og sali.
Klappstólar til leigu, einfaldir og þægilegir í flutningi og uppröðun.
Standborð til leigu fyrir móttökur, kokteilboð og standandi veislur.
Hringborð til leigu, sígild uppröðun fyrir veislur og árshátíðir.
Dansgólf til leigu, sett upp í veislutjöldum eða sölum.
Útiborð og bekkir til leigu fyrir grillveislur, útihátíðir og bæjarhátíðir.
Gashitarar til leigu, halda hita á gestum utandyra og í tjöldum.
Biðraðabönd og stólpar til leigu, stýra flæði gesta á viðburðum.
Drapperingar til leigu, klæða sali og tjöld fyrir hátíðlegri umgjörð.
Viðburðagirðingar til leigu, afmarka svæði á tónleikum og útihátíðum.
Dreglar og teppi til leigu, m.a. rauður dregill fyrir hátíðlegar móttökur.
Hoppukastali til leigu. Hentar vel í barnaafmæli, ættarmót, grillpartý, garðpartý og útihátíðir.
Hoppukastali með ofurhetjuþema. Hentar vel í barnaafmæli og aðra viðburði.
Rúmgóður gulur hoppukastali. Vinsæll í barnaafmæli, ættarmót og bæjarhátíðir.
Hoppukastali með höfrungaþema fyrir yngstu gestina.
Hoppukastalar með rennibrautum, meira fjör fyrir stærri viðburði.
Uppblásinn boxhringur til leigu, skemmtileg keppni fyrir alla aldurshópa.
Minni uppblásinn boxhringur, hentar vel fyrir yngri þátttakendur.
Uppblásið víkingaskip, vinsælt leiktæki á útihátíðum og bæjarhátíðum.
Uppblásin þrautabraut þar sem keppendur reyna að halda jafnvægi, mikið fjör fyrir hópa.
Sviðspallar (Litedeck/Prolyte) sem raðast saman í svið af hvaða stærð sem er. Einfaldir í uppsetningu og gefa sveigjanleika í bæði flatarmáli og hæð sviðs.
Risasvið fyrir tónlistarhátíðir og stórtónleika. Hefur m.a. verið aðalsvið á Secret Solstice, Fiskideginum mikla og afmæli Hafnarfjarðarbæjar. Tæknilegar þarfir sérsniðnar að hverjum viðburði.
48 fm sviðsvagn undir þaki, stækkanlegt með pöllum. Frábært fyrir barnaskemmtanir, útifundi og tónleika. Hljóð- og ljósabúnaði er komið fyrir í vinnuhæð og hann svo hífður upp með innbyggðum lyftubúnaði.
80 fm sviðsvagn undir þaki, stækkanlegt með pöllum. Kemur tilbúinn með sviðsgólfi og upphengibúnaði fyrir hljóð og ljós. Hentar fyrir tónleika, fyrirtækjaviðburði, bæjarskemmtanir og íþróttaviðburði.
Yfir 30 trommusett í safninu: Yamaha, Tama, C&C, DW, Gretsch, Ludwig, Sonor, Pearl o.fl. Einnig fjöldi frábærra sneriltromma, t.d. Black Beauty og Supraphonic. Rekið í samvinnu við Berg Geirsson og Silla Geirdal.
Fjöldi klassískra gítarmagnara: Marshall, Fender, Vox, Orange, Peavey, Roland, Supro, HiWatt. Yfir 20 bassamagnarar: Ampeg, Fender, Gallien Krueger, Ashdown o.fl.
Gítarar og bassar frá Fender og Gibson, og jafnvel kontrabassi og flygill í safninu.
Hljómborð frá Korg, Yamaha, Nord, Roland, Fender Rhodes, Wurlitzer og Hammond.
Streymisbúnaður til leigu fyrir lifandi viðburði: tónleika, ráðstefnur, íbúafundi, fyrirlestra og kynningar. Exton útvegar háklassa mynd-, ljósa-, hljóð- og hugbúnað og vinnur með þér við að þarfagreina viðburðinn svo útsendingin verði í bestu mögulegu gæðum.